Hegðunarvandi
Öll eigum við til að hegða okkur "illa". Oftast á það við þegar við missum stjórn á okkur eða á aðstæðum í lífi okkar. Börn eru ekkert öðruvísi en fullorðnir á þennan hátt. Sum börn geta ekki haft stjórna hegðun sinni eða þróa með sér hegðun sem ekki er góð fyrir þau.
Einkenni
Almennt er hugtakið „hegðunarerfiðleikar“ notað um hegðun sem víkur það mikið frá viðurkenndum, aldurstengdum viðmiðum að það gangi á rétt annarra og hindri einstaklinginn sjálfan í þroska, námi eða leik.
Gefið gaum að
Óæskileg eða erfið hegðun hjá börnum birtist yfirleitt í einhverju af þessu:
- Skapofsaköst, öskur, hótanir, ljótt orðbragð,
- að meiða aðra, skemma hluti,
- hvatvísi, óhlýðni, mótþrói og
- krafa um mikla og stöðuga athygli.
Börn sýna erfiða eða hvimleiða hegðun stöku sinnum eða tímabundið án þess að um „hegðunarerfiðleika“ sé að ræða. Þetta getur t.d. tengst því þroskaskeiði sem barnið er á eða einhverju öðru tilfallandi. Samt skiptir máli að taka strax rétt á málum og nota aðferðir sem tryggja árangursríkt uppeldi.
Hætta
Að barnið þrói með sér stjórneysi, reiði, óhlýðni og útigangur
Hvað er til ráða
Mikilvægt er að væntingar til barnsins séu sanngjarnar, raunhæfar og í samræmi við þroska þess og getu. Kröfur til barnsins þurfa að hæfa aldri og þroska, vera hvorki of miklar né of litlar.
Leggja þarf áherslu á að mynda góð tengsl við barnið, sýna því hlýju og jákvæða athygli, ræða við það, hlusta á það og svara. Mikilvægt er að vera vakandi fyrir æskilegri hegðun og hrósa fyrir hana eða umbuna á annan hátt.
Nauðsynlegt er að vera sjálfum sér samkvæmur, standa við orð og gerðir; nei á að þýða nei.
Fylgjast þarf með eigin hegðun og viðbrögðum, vera meðvitaður um áhrif þessa á hegðun barnsins.
Nauðsynlegt er að foreldrar/uppalendur séu samtaka og noti samræmdar uppeldisaðferðir.
Gefa þarf börnum skýr og einföld skilaboð um hvað má og hvað ekki og útskýra af hverju, eftir því sem þroski barnsins leyfir.
Mikilvægt er að leita ráðgjafar eða annarrar aðstoðar þegar erfiðleikar eða óvissa um réttar leiðir kemur upp.
Heimili og skóli - skoða
Foreldrahús - skoða
Heilsugæslan - skoða
Fjölskyldusvið