Leit

Leitarvél

Fóstureyðingar

Hvað geri ég þegar ég veit að ég er ólétt og er að hugleiða fóstureyðingu?

1. Hringja upp á kvennadeild Landspítalans (Hringbraut) og panta tíma hjá félagsráðgjafa. Eða hefur samband við næstu heilsugæslustöð/kvensjúkdómalækni.
2. Mæta í viðtal hjá félagsráðgjafa (helst taka pabbann með sér).
3. Læknaviðtal og læknisskoðun
4. Aðgerðin sjálf.
5. Konunni boðið að koma aftur til ráðgjafar.

Hvenær er hægt að ná í félagsráðgjafana?

Sími félagsráðgjafa er 543 3600 / 543 1000. Símatími er frá kl. 9:00 - 10:00 f.h. virka daga.
Hægt er að lesa inn skilaboð á öðrum tímum á símsvara sem konur eru hvattar til að nota þar sem engin heyrir hann nema félagsráðgjafarnir.
Kalli er svarað alla virka daga frá kl. 8:00-16:00.

Upplýsingarit Kvennadeildar um fóstureyðingar

Hve lengi þarf að bíða eftir fóstureyðingu?
Fer eftir hversu langt móðirin er gengin en í mesta lagi 1 viku.

Hvað fer fram í ráðgjafaviðtalinu?

Ýmsar spurningar spurðar, t.d. um aðstæður móðurinnar, stuðning frá fjölskyldu, pabbanum og vinum. Af hverju hún vill fara í fóstureyðingu og hvað fór úrskeiðis. Einnig er rætt um notkun getnaðarvarna. Þegar lokaákvörðun hefur verið tekin er öllu ferlinu lýst og konan skrifar undir. Ráðgjafarnir reyna að veita hlutlausa ráðgjöf og styðja ákvörðun konunnar.

Hverjar eru megin ástæður fóstureyðinga?

— Félagslegar: Aðstæður móður.
— Læknisfræðilegar: Heilsa konunnar.
— Erfðagallar í fóstri
— Nauðganir!

Hvað fer fram í læknaviðtalinu?

Farið yfir sjúkrasögu og heilsufarssögu, gerð er almenn læknisskoðun, kvenskoðun og blóðprufur teknar til að athuga blóðflokk.

Hvenær er hægt að framkvæma fóstureyðingu?

Næstum undantekningalaust leyft að 12. viku en milli 12.–16. viku þarf að fá undanþágu, þar sem vísað er til sérstakrar nefndar. Í einstaka tilfellum er fóstureyðing framkvæmd eftir 16. viku og þá vegna alvarlegs fósturgalla eða að heilsa móðurinnar er í hættu.

Hverjar eru áhætturnar?

Hættuminnst milli 6. og 12. viku. Eftir það eykst áhættan. Mesta hættan (en þó mjög lítil) er á sýkingum (1%) og þ.a.l. ófrjósemi (0,1%), en einnig getur blætt talsvert ofl.

Hvernig fer aðgerðin fram?

1. Fyrir 12. viku: Svæfing, leghálsinn víkkaður út með sérstöku áhaldi og stundum er gefið vöðvaslakandi. Síðan er farið inn með slöngu og fósturvefurinn og fylgjan eru soguð út.
2. Eftir 12. viku: Fóstureyðing framkölluð með lyfjum (prostaglandin).

Hver eru algeng viðbrögð eftir fóstureyðingu?

Andleg: Flestum líður sæmilega enda sáttar við ákvörðunina. Sumar finna fyrir sorg, sektarkennd, kvíða og þunglyndi, sem líður yfirleitt hjá á stuttum tíma.
Líkamleg: Blæðingar í u.þ.b. 6 daga og verkir í kviðarholi í 1–2 viku eftir aðgerð, svipaðir túrverkjum.

Hve langan tíma þarf konan að vera á spítalanum?

Hún kemur upp á sjúkrahús snemma morguns og er fastandi. Aðgerðin er framkvæmd um morguninn og áætluð heimferð er um 13–14.

Er einhvern tímann neitað?

Það þarf 1–2 lækna og félagsráðgjafa til að samþykkja fóstureyðingu, en það er afar sjaldgæft hér á Íslandi að konum sé neitað. Fóstureyðing er samt aldrei samþykkt eftir 22. viku.

Eru einhver skilyrði?

Ef stúlka er yngri en 16 ára verða foreldar hennar að gefa samþykki. Nema í algerum undantekningartilvikum!

Hvað kostar fóstureyðing?

Rúmlega 4000 kr fyrir sjúklinginn. Annars ef þær eiga engan pening, greiðir ríkið. Það er engum vísað á dyr.

Er hætta á að fólk frétti um fóstureyðingu?

Allir starfsmenn sjúkrahússins hafa skrifað undir algera þagmælsku. Á aðgerðartöflu eru notaðir upphafsstafir og læknabréf eru ekki send.

Hver er tíðni fóstureyðinga?

Tæplega 1000 fóstureyðingar, að meðaltali 3 á dag, eru gerðar á hverju ári. Þar af eru ca. 140 hjá unglingsstúlkum 13–19 ára, en tæplega 50% fóstureyðinga eru gerðar á stelpum á aldrinum 15–24 ára. 1 af hverjum 4 þungunum endar með fósturláti en u.þ.b. 20 af hverjum 1000 þunguðum konum fara í fóstureyðingu. 60 % þeirra tilfella sem enda með fóstureyðingu hefði mátt koma í veg fyrir með notkun getnaðarvarna. Þótt ólöglegar fóstureyðingar séu ekki framkvæmdar hér á landi eru 10–20 milljónir kvenna sem gangast undir þær í heiminum á hverju ári

 

 

Forvarnir

 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi