Sigrún Aðalbjarnardóttir segir að til séu fjórir flokkar foreldra
Leiðandi foreldrar
-krefjast þroskaðrar hegðunar af barninu og taka vel á móti hugmyndum þess. Þeir setja skýr mörk um hvað er tilhlýðilegt og hvað ekki en leggja áherslu á að nota útskýringar og hvetja börnin til að skýra út sjónarmið sín. Þeir eru hvorki uppáþrengjandi né setja börnunum stólinn fyrir dyrnar. Þeir sýna börnum einnig mikla hlýju og uppörvun.
Eftirlátir foreldrar
- bregðast einnig vel við hugmyndum barna sinna, leyfa töluverða sjálfstjórn og sýna þeim hlýju. Aftur á móti setja þeir börnunum ekki skýr mörk. Þeir eru undanlátssamir og forðast beina árekstra.
Skipandi foreldrar
- stjórna börnunum með boðum og bönnum og refsa þeim fyrir misgjörðir. Reglur eru skýrar. Þeir vænta þess að skipunum þeirra sé hlýtt án útskýringa. Þeir nota sjaldan röksemdir og sýna börnunum litla hlýju og uppörvun.
Afskiptalausir foreldrar
- ala börnin sín upp í stjórnleysi, setja ekki mörk og gera ekki kröfur