Greining
Samkvæmt markmiðslýsingu MHB er hlutverk Þroska- og hegðunarsviðs að þróa, leiða og samræma eftirfylgd, skimun og mat á þroska og hegðun barna í tengslum við heilbrigðisyfirvöld og heilsugæsluna á landsvísu.
Á þroska- og hegðunarsviði er starfrækt þverfaglegt teymi barnalækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og félagsráðgjafa sem m.a. sinnir sérhæfðri greiningu og ráðgjöf vegna þroska- og hegðunarfrávika hjá börnum. Á sviðinu er einnig unnið að fræðslu bæði fyrir foreldra og fagfólk með gerð fræðsluefnis og námskeiðahaldi.
Markmið greiningar er að frávik finnist snemma, til að auka líkurnar á að barn og fjölskylda geti notið góðs af snemmtækum þjónustuúrræðum sem miða að bætri stöðu barnsins. Hægt er að vísa börnum annars vegar í frumgreiningu og hins vegar nánari greiningu.
Greining hegðunarerfileika - skoða