Leit

Leitarvél

Uppeldi lítilla barna

Heilsugæslan hefur undanfarin ár staðið fyrir sérstökum uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra ungra barna. Námskeiðin heita  Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar.  Á þeim er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni. Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þessi námskeið, ekki síst þeir sem eiga börn undir þriggja ára aldri.

Minnispunktar um hegðun barna - skoða

Uppbyggingarstefnan

Uppbyggingarstefna (Restitution) er upprunnin í Kanada og hefur upphafsmaður aðferðarinnar Diane Gossen þróað hana síðustu 20 ár. Mest hefur verið unnið eftir aðferðum hennar í Kanada og í Bandaríkjunum en nú síðustu ár einnig í fjölda skóla á Íslandi og er Álftanesskóli kominn einna lengst í þessum málum.

Í Garðabæ er Uppbyggingarstefnan notuð í Garðaskóla með góðum árangri. Uppbyggingarstefnan felst í því að kenna börnum og unglingum að beita sjálfsaga í samskiptum við aðra. Stefnan setur umbun og refsingu upp sem andstæður uppbyggingar. Agi uppbyggingar er innri kraftur, sjálfsagi, byggður á lífsgildum fremur en reglum. Markmiðið með uppbyggingu er að kenna barni að meta hegðun sína sjálft, án ótta og skapa skilyrði fyrir æskufólk til að hugsa um hvernig manneskja það vill verða. Markmið einstaklingsins er að geta stjórnað sjálfum sér og hegða sér í samræmi við hvað honum finnst rétt að gera. Reynt er að skapa skilyrði til umræðna sem hvorki eru ógnvekjandi eða valda sektarkennd. Nemendur eru hvattir til að hugsa um þarfir sínar og annarra og hvernig hægt sé að koma til móts við þær. Unnið er að því að efla tilfinningaþroska, félagsfærni og siðvit. Fullorðnir jafnt sem börn velja sér sín eigin lífsgildi, skilgreina þau og hafa að leiðarljósi í samskiptum Markmið skólans er að skerpa á skilgreingu skólans sem umhyggjusömu samfélagi þar sem einstaklingi gefst tækifæri á að leiðrétta mistök sín. Markmið samfélagsins er að efla lýðræði og samkennd og draga úr ofbeldi og öðrum glæpum, fíkniefnaneyslu og streitu. Allir nemendur (unglingar), foreldrar, kennarar og aðrir starfsmenn skólans velja sér lífsgildi að hafa í heiðri og vinna með þau og skilgreina. Unnið er að því að komast að samkomulagi um lífsgildi sem hafa skuli í heiðri og sett eru skýr mörk og reglur sem styðja gildin sem allir eru sammála um Þeir sem unnið hafa eftir þessari stefnu segja sig hafa orðið vara við minni streitu jafnt hjá börnum sem fullorðnum, öruggari framkomu og meiri gleði. Einnig fara einkunnir í bóklegum greinum hækkandi þegar tekist hefur að gera samskipti áreynslulítil og skólinn sinnir þörfum hvers og eins.

Heimasíða Álftanesskóli - skoða Heimasíða USA -skoða  

PMT - Foreldrafærniþjálfun 

AÐFERÐIN byggir á vel rannsakaðri kenningu Gerald Pattersons  „Social Interaction Theory“  (félagsmótunar- og félagsnámskenningu) um þróun andfélagslegrar hegðunar. Gengið er út frá því að barnið læri hegðun í gegnum tengsl sín við aðra. Líffræðilegt upplag barnsins getur gert það að verkum að það er sérlega krefjandi fyrir uppalendur sína. Þessi börn eru líklegri til að mæta neikvæðum viðbrögðum eða uppgjöf frá foreldrum og öðrum í umhverfinu. Auk þess eru streituþættir oft til staðar í umhverfi barnsins, svo sem veikindi, skilnaðir eða fjárhagsáhyggjur, sem minnka enn frekar líkurnar á því að foreldrar bregðist með viðeigandi hætti við krefjandi barni. Þannig getur myndast verulegur vítahringur í samskiptum og haft í för með sér alvarlega hegðunarerfiðleika hjá börnum.

Þar sem foreldrar eru mikilvægustu kennarar barna sinna er áhersla lögð á ítarlega vinnu með þeim og gert ráð fyrir sveigjanleika til að mæta þörfum hverrar fjölskyldu. Foreldrar fá aðstoð við að rjúfa þann vítahring sem hefur myndast með því að tileinka sér nýjar leiðir í uppeldi. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðri hegðun barnsins og draga úr hegðunarvanda. Í raun er um að ræða ákveðin verkfæri sem eru: Fyrirmæli og jákvæð samskipti við barnið, notkun hvatningar við kennslu nýrrar hegðunar, að setja mörk til að draga úr og stöðva óæskilega hegðun, lausn vanda og uppbyggilegar aðferðir í samskiptum innan fjölskyldu, eftirlit með hegðun barns innan og utan heimilis, tengsl við skólakerfið og stjórn neikvæðra tilfinninga.
PMT heimasíða - skoða.  

SOS  -skoða

SOS - aðferðin er alþjóðleg uppeldiaðferð þar sem verið er að leiðbeina barninu til bættrar hegðunar. Hefur hún gefist bæði foreldrum og leikskólastarfsfólki mjög vel. Í megindráttum snýst SOS um að: Umbuna fyrir góða hegðun. Það getur falist í félagslegri umbun, tómstundaumbun og fríðindi eða efnisleg umbun. Það  hefur gefist okkur vel að nota hrós og/eða klapp á öxlina. Nota virka hundsun á óæskilega hegðun, eins og fýlu, ólund eða væli. Að refsa fyrir slæma hegðun.  Fyrst þarf að velja markhegðun sem við viljum stoppa, eins og barn sem meiðir aðra, brúkar munn eða tekur bræðiköst. Sú refsing sem við notum er hlé-aðferðin en hún er notuð í þennan hátt:
Veldu eina markhegðun í einu til að beita hléi á. Veldu leiðinlegan stað fyrir hlé.
Útskýrði hléið fyrir barninu. Bíddu þolinmóður eftir að markhegðun birtist.

Þegar markhegðun birtist: Settu barnið á hléstaðinn (sem er stóll á leiðinlegum stað) og notaðu mesta lagi 10 orð og 10 sek. til þess. Stilltu eggjaklukku á jafnmargar mín. og barnið er gamalt og settu hana þar sem barnið heyrir í henni. Bíddu eftir að klukkan hringi. Veittu barninu enga athygli á meðan það bíður eftir að klukkan hringi. Spurðu barnið, eftir að klukkan hefur hringt, hverja það telji orsök þess að það var sett í hlé.

Félagsvísindastofnun býður nú upp á sex vikna námskeið fyrir foreldra sem hannað er af sálfræðingnum Dr. Lynn Clark. Námskeiðinu er ætlað að hjálpa foreldrum að bæta hegðun barna sinna og stuðla að félagslegri og tilfinningalegri aðlögun. Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um hvernig skýr skilaboð efla foreldrahlutverkið, aðferðir til að efla æskilega hegðun og draga úr óæskilegri hegðun, auk þess sem farið verður í grundvallaratriði í notkun hlés.

Aðstoð sérfræðinga

Hægt er að leita til sérfræðinga ef hegðun barns er orðin of erfið eða þá að samskiptin innan fjölskyldunnar eru ekki eins og þau eiga að vera.

Leitið í símaskrá, ræðið við vini ykkar eða fjölskyldu um reynslu þeirra. Hægt er að tala við starfsmenn skóla eða fjölskyldusviðs til að fá ráð varðandi þetta.

 

 

 

 

 

Forvarnir

 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi