Hvað á að gera?
Ef foreldrar hafa áhyggjur af barni sínu í skólanum eiga þeir að hafa samband við umsjónarkennara barnsins og ræða málin. Stundum þarf að tengja barnið við hjúkrunarfræðing eða námsráðgjafa skólans til að aðstoða barnið í skólaumhverfinu. Einnig getur félagsmiðstöð stundum verið mikilvægur hluti þess að vinna með mál barnsins.
Ef ekki gengur að vinna málið er málum barna stundum vísað til nemandaverndarráðs sem fundar hálfsmánaðarlega. Þar sitja skólastjórnendur, deildarstjórar, námsráðgjafar, skólasálfræðingur, yfirmaður félagsmiðstöðvar og fulltrúi fjölskyldusviðs Garðabæjar.
Í sumum málum er niðurstaðan sú að tilkynna mál barnsins til fjölskyldusviðs sem er fulltrúi barnaverndarnefndar Garðabæjar.
Umsjónarkennari
Hver umsjónarkennari hefur einn bekk eða hóp til umsjónar og leitast er við að umsjónarkennari í 9. og 10. bekk kenni viðkomandi nemendum eina til tvær námsgreinar. Í 8. bekk kenna umsjónarkennarar 2-4 námsgreinar. Umsjónarkennari gætir hagsmuna umsjónarnemenda sinna innan skólans og leitast við að hafa ætíð sem besta vitneskju um nám og líðan þeirra. Hann er tengiliður skólans við foreldra og forráðamenn umsjónarnemenda ásamt því að fylgjast með námsframvindu umsjónarnemenda og leiðbeinir þeim svo þeir nái sem bestum árangri í náminu.
Umsjónarkennari fylgist með skólasókn umsjónarnemenda sinna og fer yfir skólasókn með nemendum í umsjónartíma sem er einu sinni í viku á stundaskrá nemenda. Til að sinna þessu skal umsjónarkennari: Hafa viðtöl við nemandann. Hafa samband við forráðamenn með viðtölum, tölvusamskiptum eða skriflega og í gegnum nemendahandbók. Umsjónarkennari skal ávallt hafa samband við forráðamenn ef sérstakir erfiðleikar verða í námi, til árekstra kemur vegna hegðunar eða ef skólasókn er ábótavant. Hafa samráð við aðra kennara, stjórnendur og starfsfólk skóla og félagsmiðstöðvar. Halda umsjónartíma með öllum umsjónarnemendum vikulega þar sem m.a. er farið yfir handbækur nemenda, skólasókn og þau mál rædd er upp kunna að koma.
Námsráðgjafi
Hlutverk námsráðgjafa er að vinna með nemendum, forráðamönnum, kennurum, skólastjórnendum og öðrum starfsmönnum skólans að ýmiss konar velferðarstarfi er snýr að námi, líðan og framtíðaráformum nemenda.
Samvinna milli nemanda og námsráðgjafa er grundvöllur þess að ráðgjöfin nýtist nemandanum.
Aðstoð námsráðgjafa miðar að því að nemandinn læri að taka ákvarðanir sem skipta hann máli.
Nemendur geta leitað til námsráðgjafa að eigin frumkvæði eða beðið umsjónarkennara að hafa milligöngu um viðtal. Garðaskóli - skoða
Hjúkrunarfræðingur
Heilsugæsla Garðaskóla er á vegum Heilsugæslunnar í Garðabæ. Hjúkrunarfræðingur er í skólanum
fyrir hádegi virka daga. Markmið heilsugæslunnar er að stuðla að bættri líðan og heilsu nemenda
skólans. Hjúkrunarfræðingur sér um að og afla almennra upplýsinga um heilsufar nemenda og halda
spjaldskrá þar um, fylgjast með og framkvæma ónæmisaðgerðir. Einnig að veita fræðslu og ráðgjöf um hollustuhætti og heilbrigt líferni eftir því sem við verður komið. Hjúkrunarfræðingur sinnir einnig slysaþjónustu á þeim tíma sem hann er í skólanum. Nemendur og foreldrar geta hvort heldur sem er leitað beint til hjúkrunarfræðings með sín mál eða með milligöngu kennara. Hjúkrunarfræðingur Garðaskóla er Ása Sjöfn Lórensdóttir.
Verksvið hjúkrunarfræðings
• Tengiliður við heilsugæslu og veitir upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er á vegum
hennar.
• Veitir fræðslu og ráðgjöf um hollustuhætti og heilbrigt líferni. Sérstök áhersla er lögð á að
finna nemendur í áhættuhópum og fylgja þeim eftir með fræðslu og viðtölum.
• Eftirlit með andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði nemenda. Leitast við að greina
vandamál nemenda og vísa þeim áfram til sérfræðinga ef þörf er á.
• Fylgist með og framkvæmir ónæmisaðgerðir samkvæmt stefnu heilsugæslunnar.
• Annast bráðahjálp við slysum og veikindum sem upp koma á skólatíma.
• Hjúkrunarfræðingur sér einnig um að sjúkrakassar í skólanum séu í lagi.
• Tekur þátt í úrlausnum vandamála hjá nemendum í samvinnu við aðra fagaðila s.s. meðferðarteymi heilsugæslunnar - skoða .
Skólasálfræðingur
Sálfræðingur starfar við skóladeild fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar. Hann er til viðtals í skólanum á auglýstum tímum. Athygli skal vakin á því að nemendur og foreldrar þeirra geta snúið sér til hans á þeim tíma annaðhvort með milligöngu kennara eða milliliðalaust. Einnig er hægt að snúa sér til skólaskrifstofunnar eða skrifstofu skólasálfræðings. Skólasálfræðingur skólanna eru Brynjólfur G. Brynjólfsson og Trausti Valsson. Sími á bæjarskrifstofum er 525 8500.
Verksvið sálfræðings
• Athugun og greining á nemendum sem geta ekki nýtt hæfleika sína í námi og starfi og eiga í
sálrænum, félagslegum eða námslegum erfiðleikum.
• Skipulagning á meðferðarúrræðum fyrir nemendur.
• Ráðgjöf og leiðbeiningar til foreldra og starfsmanna skóla um uppeldi og kennslu nemenda.
• Samvinna við einstaklinga og stofnanir sem fara með fjölskyldumál.
• Tengsl við félags- og heilbrigðissvið vegna barnaverndarmála.
• Öflun og miðlun upplýsinga.
Nemendaverndarráð
Nemendaverndarráð er starfandi í öllum grunnskólum Garðabæjar og starfar samkvæmt 39.gr. laga nr.66 frá 1995 og reglugerð nr. 388 frá 1996.
Nemendaverndarráð samræmir störf þeirra sem sjá um málefni nemenda varðandi forvarnarstörf, heilsugæslu, námsráðgjöf og sérfræðiþjónustu. Ráðið er skólastjóra til aðstoðar við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur. Nemendaverndarráð fjallar um úrræði í málum nemenda sem til þess er vísað. Fundir eru bókaðir og farið er með allar upplýsingar samkvæmt reglum um meðferð trúnaðargagna.
Sem dæmi um verksvið nemendaverndarráðs.
Í Garðaskóla heldur ráðið vikulega fundi sem skólastjóri, sálfræðingar, deildarstjóri í sérkennslu, deildarstjórar árganga, hjúkrunarfræðingur, skólalæknir, forstöðumaður Garðalundar og tveir námsráðgjafar sitja.
Umsjónarkennarar eru boðaðir á fundi þegar unnið er með þyngri mál og fulltrúi félagsþjónustu ef með þarf.
Markmið:
• Að bæta sérfræðiþjónustu við nemendur og gera hana skilvirkari.
Vinnuferli:
• Hópurinn fjallar um einstaka nemendur, námslega og félagslega
• Mál heilla bekkja
• Agamál
• Annað er varðar velferð nemenda við skólann
Hópurinn ákveður hver/hverjir taka að sér hvert mál og hvenær viðkomandi skal greina frá árangri þess sem gert er.
Félagsmiðstöðin Garðalundur
Félagsmiðstöðin Garðalundur tók til starfa árið 1983. Þar fer fram þróttmikið æskulýðsstarf í samvinnu við skóla bæjarins. Þar er einnig vettvangur fyrir félagasamtök og aðrar stofnanir bæjarins og þeim veitt þar þjónusta og ýnis aðstoð við samkomuhald. Félagsmiðstöðin þjónar öllum aldurshópum en sérstök áhersla er á skipulagt starf fyrir börn og unglinga. Haft er mjög náið samstarf og samráð við stjórnendur Garðaskóla um mótun stefnu í starfi fyrir unglinga. Unglingastarfið fer að mestu leyti fram samhliða skólaárinu þ.e.a.s. frá september til júní.
Frá sumrinu 1998 hafa starfsmenn Garðalundar annast vinnuskóla Garðabæjar og töluverð reynsla komin á þann starfsvettvang samhliða félagsmiðstöðvarstarfinu. Heimasíða - skoða