Spegillinn - skoða
Samtökin voru stofnuð á aðalfundi þann 17. október 2002. Samtökin voru stofnuð af aðstandendum átröskunarsjúklinga. Megintilgangur samtakanna er að beita sér fyrir fræðslu, forvörnum og meðferðarúrræðum fyrir átröskunarsjúklinga. Spegillinn er hagsmunasamtök fyrir Lystarstol/Anorexiu og Lotugræðgi/Bulimiu. Spegillinn var stofnaður til minningar um Gerðu Björg Sandholt en hún lést úr sjúkdómnum 6.júní 2002. Samtökin hafa gefið út fræðslubækling sem dreift er á fræðslufyrirlestrum en hann liggur einnig frammi á öllum heilsugæslustöðvum á landinu. Sjálfshjálpargrúbba hefur verið starfrækt fyrir aðstandendur anorexiu- og bulimiusjúklinga en nú þetta árið munum við bjóða upp á stuðning við aðstandendur í formi símtala/samtala við fulltrúa okkar og/eða við aðra aðstandendur sem eitt sinn hafa verið í svipuðum sporum. Upplýsingar veittar í síma samtakanna 661-0400 og með tölvupósti á spegillinn@spegillinn.is . Samtökin bjóða upp á forvarna- og fræðslufyrirlestra fyrir grunn- og framhaldsskóla, félagsmiðstöðvar, vinnustaði og þ.h. Til að fá frekari upplýsingar sendið beiðni með tölvupósti eða hringið í símann okkar 661- 0400.
Samtökin starfa einnig sem þrýstihópur á heilbrigðiskerfið um bætt meðferðarúrræði til handa lystarstols- og lotugræðgisjúklingum.
Meðferðar og fræðslumiðstöð vegna matarfíknar - MFM - skoða
Boðið upp á greiningu, ráðgjöf og einstaklingsmiðaða meðferð fyrir þá sem greinast með matarfíkn og fjölskyldur þeirra. Sinnir fræðslu með fyrirlestrum, námskeiðahaldi og útgáfu á fræðsluefni um matarfíkn. mfm miðstöðin leggur áherslu á að fræðslan og ráðgjöfin byggist á persónulegri reynslu þeirra sem veita hana og fagmennsku þeirra fagaðila sem leitað er til þegar þurfa þykir.
Forma - skoða
Þegar náin fjölskyldumeðlimur veikist af átröskun, upplifa aðstandendur mikinn vanmát. Mikilvægt er að aðstandendur sýni mikla ást og umhyggju, reyni af fremsta magni að vera þolinmóðir og sýna skilning. Átröskun þrýfst á gagnrýni, góðri jafnt og slæmri, átröskunarsjúklingurinn tekur allri gagnrýni sem eitthvað slæmt og notar hana gegn sér. Ekki má samt gleyma sjálfum sér, og er mjög mikilvægt að aðstandendur muni að hugsa vel um sjálfan sig.
Bugl - Barna- og unglingageðdeild
Göngudeild BUGL veitir börnum og unglingum 17 ára og yngri þjónustu við geð- og þroskaröskunum sem leitt hafa til tilvísunar fagaðila til deildarinnar. Starfsemi göngudeildar er skipt í almennt teymi (A) og ofvirkniteymi (O) en innan göngudeildar fer einnig fram sérhæfð teymisvinna við átröskunum og fjölskyldumeðferð.
Staðsetning:
Deildin er skráð við Dalbraut 12 en stendur í reynd við Leirulæk. Ekið er inn frá Laugalæk.
Meðferð á deildinni:
Á deildinni er stunduð einstaklings-, hóp- og fjölskyldumeðferð. Alltaf er unnið með foreldrum og stundum allri fjölskyldunni. Meðferðartilboð eru fjölbreytt og sniðin að eðli vandans og þörfum skjólstæðinga. Á deildinni er unnið í þverfaglegu samstarfi. Fjölmargir hópar fyrir börn, unglinga og foreldra eru starfræktir. Má þar nefna hópmeðferð fyrir þunglynda unglinga, félagsfærniþjálfun og þjálfunarnámskeið fyrir foreldra.
Starfsfólk deildarinnar:
Á deildinni starfa hjúkrunarfræðingar, læknar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, félagsráðgjafar og listmeðferðaraðili.
Símanúmer deildar:
Móttaka: 543 4300
Opin 8:00 til 16:00 virka daga
Deildarstjóri hjúkrunar: 543 4332
Fulltrúi göngudeildari: 543 4322
Landsspítali - átröskunarteymi -skoða
Staðsetning: Geðdeildarbygging við Hringbraut, 1. hæð
Þjónustutími: Kl. 08.30 – 16.00 virka daga
Sími: 543 4050
e-mail: atroskun@landspitali.is
Starfsfólk átröskunarteymis Landspítala
Teymið er þverfaglegt og sinnir greiningu og meðferð hjá sjúklingum með átraskanirnar lystarstol, lotugræðgi og ódæmigerðar átraskanir. Meðferð fer fram á göngudeild eða á dagdeild eftir því sem við á. Einnig er boðið upp á fræðslu til sjúklinga og aðstandendastuðning. Til að komast í meðferð þarf tilvísun frá fagfólki t.d. heimilislækni, námsráðgjafa eða öðrum meðferðaraðilum. Reynt er að sinna öllum beiðnum eins skjótt og unnt er, en biðtími eftir tíma getur verið frá 2-4 vikum. Ef málið þolir enga bið og þörf er á bráðahjálp er fólki bent á að leita til bráðaþjónustu geðsviðs við Hringbraut.
Við komu í fyrsta sinn eða eftir meðferðarhlé fara einstaklingar í greiningarviðtal þar sem tilgangurinn er að meta vanda og þarfir hvers og eins. Sá fagaðili sem tekur greiningarviðtalið verður aðalmeðferðaraðili og leggur upp meðferðaráætlun í samráði við einstaklinginn. Öllum sem innritast í teymið er boðið að hitta geðlækni og næringarfræðing. Meðferð í teyminu getur verið skammtíma- eða langtímameðferð og fer ýmist fram einstaklingsbundið og/eða í hóp. Áhersla er lögð á að bjóða aðstandendum viðtöl og stuðning eftir því sem við á.
Markmið meðferðar við anorexiu nervosa (lystarstoli) er að aðstoða sjúkling við að komast í kjörþyngd, meðhöndla líkamlega fylgikvilla og auka vilja sjúklinga til að ná bata og öðlast heilbrigði. Önnur markmið í meðferð eru að hjálpa einstaklingnum að takast á við hugsanaskekkjur og röng viðhorf sem tengjast mataræði og upplifun af líkamanum. Einnig getur verið djúpstæðari tilfinningavandi sem tengist átröskuninni og þarf að vinna sérstaklega með. Stundum þarf að nota lyf samhliða, en lyf koma að takmörkuðu gagni í meðferð á lystarstoli.
Markmið meðferðar við bulimiu nervosa (lotugræðgi) er að hjálpa einstaklingum að ná tökum á reglubundnu, nægilegu mataræði og ná stöðugleika í líðan. Hugræn atferlismeðferð er árangursrík, en stundum þarf einnig lyfjameðferð, ef einstaklingar eru með erfiðan kvíða eða þunglyndi samhliða.
Geðhjálp - skoða
Geðhjálp er hagsmunasamtök þeirra sem eiga eða hafa átt við geðraskanir að etja, aðstandenda þeirra og allra þeirra er láta sig geðheilbrigðismál varða.Sjálfstætt starfandi sérfræðingar
Hægt að finna í símaskrá s.s. félagsráðgjafar, fjölskylduráðgjafar, sálfræðingar, geðlæknar, læknar