Leit

Leitarvél

Viðhorfskönnun meðal foreldra 2009

Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar kannaði viðhorf foreldra til þeirrar þjónustu sem dagforeldrar í Garðabæ veita börnum og foreldrum bæjarins. Könnunin er einn liður í því að auka áhrif foreldra á þjónustu við börn sín. Könnunin fór fram með tölvupósti dagana 21. - 28. janúar frá bæjarskrifstofu Garðabæjar og nutu foreldrar nafnleyndar. Könnunin var send til 43 aðila og svör bárust frá 21 sem gerir 48,84% svörun.

Af niðurstöðum að dæma eru foreldrar almennt ánægðir með daggæslu barns síns og telja að því líði vel í daggæslunni og að aðbúnaður þar sé góður og öruggur. Gera má betur í upplýsingagjöf frá dagforeldrum til foreldra varðandi gæsluna og þær reglur sem þar eru í gildi. Dagleg samskipti skipa þar stóran sess. Einnig þarf að auka upplýsingar um hvernig eftirliti er háttað með dagforeldrum. Greinilegt er af svörum foreldra að mikilvæg sé að þeir hafi möguleika á því að velja milli dagforeldra, leikskóla og smábarnaleikskóla fyrir barn sitt eftir að fæðingarorlofi lýkur.

Niðurstöður viðhorfskönnunarinnar.

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi