Leit

Leitarvél

Laun og kjarasamningar

3.1 Vinnutími


Á ráðningarsamningi skal tilgreina vikulegan vinnutíma, þ.e. þann klukkustundafjölda sem starfsmaður á að skila. Vinnutími getur verið mismunandi eftir vikudögum og er æskilegt að gert sé sérstakt samkomulag í þannig tilvikum.
Um vikulegan vinnutíma fer skv. kjarasamningi starfsmannsins, oftast 40 klst. miðað við 100% starf.
Vinnutími og starfshlutfall grunnskóla- og tónlistarskólakennara ákvarðast af fjölda kenndra stunda.

3.2 Uppgjör launa við starfslok

Þegar starfsmaður lætur af störfum skal skila starfsmannahaldi tilkynningu þar um sem kveður á um síðasta vinnudag viðkomandi starfsmanns. Fjarvistaskrá fylgi viðkomandi tilkynningu. Eigi starfsmaður óuppgert orlof við starfslok er það gert upp eigi síðar en næstu mánaðarmót eftir að starfsmaður hefur verið með regluleg laun, þ.e hætti hann starfi t.d. 20. apríl, skal orlof gert upp eigi síðar en 1. júní.
Starfsmaður sem hættir skal tilkynna það sérstaklega óski hann eftir að hefja töku eftirlauna. Starfsmannahald tilkynnir lífeyrissjóði um starfslok og starfskjör viðkomandi við starfslok. Þetta á sérstaklega við um starfsmenn sem greitt hafa iðgjald til B deildar LSR.

3.3 Dreifð laun

Dreifð laun kallast það þegar starfsmaður vinnur hluta úr ári en launum hans er dreift á alla 12 mánuði ársins. Þetta á aðallega við í grunnskólum bæjarins. Á ráðningarsamningi skal tilgreina þann klukkustundafjölda sem starfsmaður raunverulega vinnur þann tíma sem starfsskylda hans varir (t.d. 9,5 mánuði ársins) en í reitinn starfshlutfall skal tilgreina þann hundraðshluta launa sem greiða ber starfsmanni hvern mánuð í 12 mánuði.

3.4 Kjarasamningar/starfsmannafélög


Starfsmenn Garðabæjar taka laun skv. mismunandi kjarasamningum sem þó eru allir milli ákv. stéttarfélags og Launanefndar sveitarfélaga sem er samningsaðili fyrir flest sveitarfélög landsins. Það fer eftir eðli starfs og starfsheiti eftir hvaða kjarasamningi farið er, t.d. er Starfsmannafélag Garðabæjar samningsaðili fyrir flesta ófaglærða starfsmenn bæjarins, Hlíf er samningsaðili verkamanna, Kennarasamband Íslands semur fyrir grunnskóla-, leikskóla- og tónlistarskólakennara. Óheimilt er að greiða starfsmönnum eftir kjarasamningi sem ekki semur um laun fyrir það starfsheiti sem starfsmaðurinn er ráðinn í. T.d. getur leiðbeinandi í leikskóla ekki þegið laun skv. Kjarasamningi Félags leikskólakennara. Þá hefur sveitarfélagið ekki heimild til að greiða skv. kjarasamningum sem það er ekki aðili að eða samningi sem Launanefnd sveitarfélaga er ekki aðili að. T.d. getur starfsmaður í leikskóla ekki fengið greidd laun skv. kjarasamningi VR. Í samningum sveitarfélaganna er tilgreind aðild að ákveðnu stéttarfélagi, sem fer með samningsumboð viðkomandi kjarasamnings og ber launþega því að greiða félagsgjöld til þess stéttarfélags. Þannig getur starfsmaður ekki greitt félagsgjöld til VR en þegið laun skv. kjarasamningi Hlífar eða KÍ.
Nánar um kjarasamninga vísast til laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 94 frá 31.12.1986, en lög þessi gilda um starfsmenn sveitarfélaga og ríkisins.
Sjá nánar á heimasíður Sambands íslenskra sveitarfélaga:
http://samband.is/template1.asp?id=921

3.5 Trúnaðarmenn

Á hverjum vinnustað þar sem a.m.k. fimm manns starfa er starfsmönnum heimilt að kjósa úr sínum hópi einn trúnaðarmann. Á vinnustað með a.m.k. 50 starfsmenn er heimilt að kjósa tvo trúnaðarmenn.
Um trúnaðarmenn á vinnustöðum, hlutverk þeirra og skyldur er fjallað í V. kafla, 28. gr. laga nr. 94/1986.

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi