Jafnrétti, fjölskylduábyrgð og einelti
6.1 Jafnréttisstefna
Markmið jafnréttisstefnu Garðabæjar er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla í Garðabæ og jöfnum möguleikum kynjanna til að nýta sér það lagalega jafnrétti sem er til staðar. Þetta á við um menntun, atvinnulíf , félagslíf og fjölskyldulíf.
http://gardabaer.is/Stjornsysla/stefna-gardabaejar/jafnrettisstefna
6.2 Fjölskyldustefna
Fjölskyldustefna Garðabæjar er stefna alls sveitarfélagsins og tekur til allra þeirra þátta er áhrif hafa á velferð og aðstæður fjölskyldna í Garðabæ.
Með fjölskyldustefnunni er leitast við að skapa sem heildstæðasta umgjörð utan um fjölskylduna og þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir henni.
http://gardabaer.is/Stjornsysla/stefna-gardabaejar/fjolskyldustefna
6.3 Einelti á vinnustað
Til eru ýmsar skilgreiningar á einelti sem allar eiga þó sameiginlegt að vísa til neikvæðrar hegðunar sem beinist að ákveðnum aðila eða aðilum á vinnustað. Í reglugerð um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum, nr. 1000/2004, er einelti skilgreint þannig: ,,Ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Kynferðisleg áreitni og annað andlegt eða líkamlegt ofbeldi fellur hér undir. Hér er ekki átt við skoðanaágreining eða hagsmunaárekstur sem kann að rísa á vinnustað milli stjórnanda og starfsmanns eða tveggja eða fleiri starfsmanna enda sé skoðanaágreiningur eða hagsmunaárekstur hvorki viðvarandi eða endurtekinn kerfisbundið”.
Allt starfsfólk Garðabæjar á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og að það hafi tækifæri til að vinna störf sín án þess að eiga á hættu einelti eða kynferðislega áreitni. Þess vegna er lögð áhersla á að starfsfólk bæjarins skapi og sé skapað umhverfi sem laust er við kynferðislega áreitni eða einelti af einhverju tagi. Lögð er áhersla á að starfsfólk sé ánægt með vinnustað sinn, bæði starfsumhverfi og starfsanda og að samhugur, samstarf og gagnkvæm virðing ríki milli starfsmanna. Einnig er lögð áhersla á að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum bæjarstarfsmanna séu í sem bestu horfi enda eru það gagnkvæmir hagsmunir að vellíðan og heilbrigði starfsmanna sé haft að leiðarljósi. Starfsmaður sem þola þarf kynferðislega áreitni og/eða einelti er ekki líklegur til að skila jafngóðu starfi og hann/hún annars gerði. Vinnustaður þar sem kynferðisleg áreitni og/eða einelti viðgengst býður ekki upp á góðan vinnuanda og vinnuskilyrði. Það er því öllum í hag að reynt sé af fyllstu alvöru að skapa góðar starfsaðstæður og koma í veg fyrir hverskonar áreitni.
Ýmsar upplýsingar um einelti:
http://www.vinnueftirlit.is/is/gagnabrunnur/einelti/
6.4 Sveigjanlegur vinnutími
Garðabær vill bjóða starfsmönnum upp á sveigjanlegan vinnutíma eins og kostur er á. Gert er ráð fyrir að starfsmönnum skuli gert kleift að minnka starfshlutfall tímabundið vegna fjölskylduábyrgðar, t.d. vegna umönnunar barna og sjúkra á heimili. Þá skuli starfsmenn eiga kost á hlutastörfum og sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem aðstæður leyfa. Samkomulag um fjarvinnu hefur verið gert milli Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Kennarasambands Íslands f.h. aðildarfélaga sinna annars vegar og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga. Hið gullna jafnvægi er áhugaverður vefur um samræmingu starfs og einkalífs. Þar má hins vegar nálgast ýmsar upplýsingar og fræðsluefni um hvernig má vinna að auknu jafnvægi milli einkalífs og starfs.