Leit

Leitarvél

Starfslok


9.1 Uppsagnarfrestur


Uppsagnir skulu vera skriflegar með þeim fyrirvara sem lög og kjarasamningar kveða á um. Þó getur starfsmaður oft samið við yfirmann sinn um lengd uppsagnarfrests og tilhögun uppsagnar. Uppsagnir skulu miðast við mánaðamót, þ.e. þær koma til framkvæmda fyrsta dag mánaðarins eftir að uppsagnarfrestur er liðinn. Segi starfsmaður, með þriggja mánaða uppsagnarfrest samkvæmt kjarasamningi, starfi sínu lausu 15. dag janúarmánaðar kemur uppsögn hans til framkvæmda þann 1. maí.

9.2 Starfslok vegna aldurs


Sérstök ákvæði um starfslok starfsmanna sveitarfélaga eru í kjarasamningum stéttarfélaga við Launanefnd sveitarfélaga. Starfsmaður skal láta af störfum sem fastráðinn starfsmaður næstu mánaðarmót eftir að hann hefur náð 70 ára aldri. Kennarar hafa leyfi til að starfa út það skólaár sem 70 ára aldri er náð.
Uppsagnarfrestur er 3 mánuðir.

9.3 Starfslokasamtöl


Starfsmönnum sem hætta störfum hjá sveitarfélaginu er boðið upp á starfslokasamtal við næsta yfirmann sinn eða starfsmannstjóra og ávallt skal leitast við að starfslok verði með jákvæðum hætti. Slíkt starfslokaviðtal gefur vinnustaðnum tækifæri til að draga lærdóm af ábendingum starfsmannsins um það sem betur má fara í starfstilhögun, stjórnun o.fl. Í því skal áréttað að þagnarskylda haldist þrátt fyrir starfslok.

9.4 Starfslokanámskeið

Stefnt er að því að starfsmenn sem ljúka störfum sé boðið upp á starfslokanámskeið.
Meðal þess sem fjallað er um á starfslokanámskeiðum er:
* þjónusta við aldraða kynnt,
* öldrunarsálfræðingur fjallar um andlega þáttinn í öldrun,
* starf Félags eldri borgara kynnt,
* fulltrúi frá Tryggingarstofnun fjallar um almannatryggingarkerfið og fulltrúi frá LSR fjallar um lífeyrismál,
* kynning á sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins og kirkjunnar og félagsráðgjafi fjallar um það að eldast og láta af störfum.
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum.

9.5 Sveigjanleg starfslok 

Starfsmönnum Garðabæjar skal standa til boða sveigjanleg starfslok þar sem það á við. Sveigjanleg starfslok verða að nýtast viðkomandi stofnun og þeim eintaklingi sem hyggst undirbúa starfslok.
Ástæður sveigjanlegra starfsloka eru til dæmis að margir starfsmenn búa yfir mikilli þekkingu sem stofnanir vilja ekki að glatist og einnig er hluti starfsmanna við góða heilsu þegar kemur að starfslokum.
 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi