Sýning í Listasal Garðabæjar
Charlotta S. Sverrisdóttir hélt sýningu í Listasal Garðabæjar frá 24. október - 8. nóvember 2009. Sýningin nefndist ,,Húsin mín í Sjálandshverfinu".
Staðsetning:
Listasalur Garðabæjar er staðsettur að Garðatorgi 7.
Um listamanninn:
Charlotta S. Sverrisdóttir hefur starfað sem kennari í 30 ár og tekið fjölmörg námskeið í myndlist. Veturinn 2000-2001 stundaði Charlotta fullt nám í Fine Arts, þ.e.a.s. vatnslitun, olíumálun, teikningu, portrait, modelteikningu og listasögu í myndlistadeildinni í Long Beach City College í Californíu.
Charlotta hefur tekið þátt í samsýningu í Huntington Beach Art Center í Huntington Beach, Californíu, vorið 2001 og haldið 5 einkasýningar í Reykjavík og nokkrar samsýningar. Þá síðustu á Garðatorgi í apríl ásamt öðrum listamönnum í Garðabæ.
Árin eftir 2002 hefur Charlotta eingöngu stundað nám í olíumálun við Myndlistaskóla Kópavogs undir leiðsögn Margrétar Jónsdóttur listmálar og Bjarna Sigurbjörnssonar listmálara ásamt masterklass og málstofu hjá Bjarna. Charlotta vinnur við kennslu í Hlíðaskóla og er með vinnustofu í Auðbrekku 6, Kópavogi, þar sem hægt er að hafa koma og skoða eftir samkomulagi.