Afsláttur af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega
Einstaklingar með tekjur árið 2008 allt að kr 3.600.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 3.900.000.-
Hjón með tekjur árið 2008 allt að kr. 4.800.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.000.000.
Ekki þarf að sækja um lækkunina. Gerður verður vélrænn samanburður tekna samkvæmt skattframtali 2009.
Í þeim tilvikum sem tekjur eru lægri á árinu 2009 en á árinu 2008 geti aðilar sótt um frekari lækkun með því að leggja fram staðfest skattframtal að lokinni álagningu