Listadagar barna og ungmenna í Garðabæ
Listadagar barna og ungmenna hafa verið haldnir í Garðabæ frá árinu 2003. Listadagarnir hafa verið haldnir á uþb tveggja ára fresti og árið 2010 verða þeir haldnir í fjórða sinn. Að þessu sinni verða listadagarnir í lok apríl eða nánar tiltekið dagana 20. apríl – 1. maí nk. Dagskrá listadagana verður kynnt hér á heimasíðunni þegar hún liggur fyrir í byrjun apríl.
Mikil gróska er í alls konar listsköpun í skólum bæjarins, þ.e. í leikskólum, grunnskólum, Tónlistarskóla Garðabæjar og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Jafnframt fer fram skapandi starf í félagsmiðstöðinni Garðalundi og fjöldi ungra Garðbæinga stundar listsköpun á eigin vegum í Garðabæ eða annars staðar. Á listadögunum er ætlunin að reyna draga fram og bjóða til sýningar og flutnings fjölbreytileg verk eftir mismunandi aldurshópa. Alls konar listir verða sýnilegar þar má nefna tónlist, dans, myndlist, hönnun, leiklist, bókmenntir, ljósmyndun og margt fleira.
Upplýsingar um listadagana
Áhugasamir um listadagana geta haft samband við Huldu Hauksdóttur upplýsingafulltrúa á bæjarskrifstofunum í síma 525 8500 eða í netfangi hulda@gardabaer.is eða við Árdísi Olgeirsdóttur fræðslu- og kynningarfulltrúa list-verk og hönnunar í s. 525 8500 eða netfang ardisol@gardabaer.is.´