Leit

Leitarvél

Sýning í Listasal Garðabæjar

Björg Atla opnaði málverkasýningu í Listasal Garðabæjar laugardaginn 13. febrúar 2010. Sýninguna nefndi hún Tilbrigði við stef.

Sýning Bjargar stóð til 28. febrúar og var opin alla daga frá klukkan 13-18.


Björg Atla                             Hugsað til Nangiala / 80x165 cm



Um listamanninn:

Björg Atla útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1982, en  hafði sótt ýmis námskeið í Myndlistaskólanum í Reykjavík 1976-79. Hún kenndi olíumálun við sama skóla 1982-87. Björg hefur verið með eigin vinnustofu síðan 1982. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar, síðast í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar 2004, og tekið þátt í samsýningum, þar á meðal tveimur sýningum myndlistamanna í Garðabæ 2009.  Björg er félagi í FÍM, SÍM og Hópi listamanna í Garðabæ.  

 

Í verkum sínum á sýningunni velur Björg að nota aðferð vatnslitatækninnar og leitast við að ná fram flæði, gagnsæi og tærleika. Hún er sem fyrr heilluð af því að rannsaka áhrif lita og litaandstæðna í myndfletinum. Myndir hennar eru ekki málaðar eftir beinum fyrirmyndum, heldur tjá í þöglum tónum innri sýn. Hafið, jörðin og himinninn eru þó  aflvaki tilfinninga úr sálarkirnu málarans.


 

 

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi