Daggæsla barna í heimahúsum
Dagforeldrar annast gæslu barna í heimahúsum. Starfstími er virka daga og er dvalartími barna mismunandi en aldrei lengri en 9 tímar í senn.
Listi yfir starfandi dagforeldra í Garðabæ.
Garðabær greiðir niður gæslu barna úr Garðabæ hjá dagforeldri. Markmiðið er að gera vistun hjá dagforeldri að raunverulegum valkosti fyrir foreldra ungra barna með því að kostnaður við hana verði sá sami og við leikskóladvöl.
Dagforeldrar eiga rétt á greiðslu til að bæta aðstöðu á heimilum sínum með tilliti til þarfa og öryggis þeirra barna sem þeir vista.
Reglur um vistun barna hjá dagforeldrum - upplýsingar til foreldra
Reglur um aðstöðugreiðslur til dagforeldra
Reglur um greiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum.
Eyðublöð vegna vistunar barna hjá dagforeldrum
Foreldrar barna eldri en eins árs, sem eru á biðlista eftir leikskóla og ekki í annarri niðurgreiddri dagvistun, geta einnig sótt um greiðslur þar til barninu býðst leikskólavist. Greiðslan nemur 11.000 krónum fyrir hvert barn. Eyðublöð til að sækja um þessar greiðslur eru á vefnum.
Upplýsingar veitir:
Anna Magnea Hreinsdóttir, leikskólafulltrúi,
virka daga, nema mánudaga frá kl. 9-14,
sími 525 8542,
netfang: annah@gardabaer.is
Systkinaafsláttur
Ef fleiri en eitt barn eru í dvöl á leikskóla, í tómstundaheimili eða hjá dagforeldrum eiga foreldrar rétt á systkinaafslætti fyrir eldra/elsta barnið. Foreldrar sem eiga tvö börn fá 50% afslátt af grunngjaldi annars barnsins og þeir sem eiga þrjú börn fá 75% afslátt af grunngjaldi þriðja barnsins. Afsláttur er veittur af grunngjaldi, fullt verð er greitt fyrir fæði. Umsóknareyðublað um systkinafslátt.
Viltu skapa þér atvinnu?
Upplýsingar um starf sem dagforeldri
Sjá einnig:
Leikskólar í Garðabæ
Tómstundaheimili/gæsla í grunnskólum