Friðlýsingar í Garðabæ
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti í maí 2006 tillögur um friðlýsingu Búrfellshrauns frá gígs til strandar og hefur verið unnið að framfylgd þeirrar samþykktar frá þeim tíma.
Fyrsta friðlýsingin í Garðabæ náði til Vífilsstaðavatns og nágrennis sem var friðlýst sem friðland 2. nóvember 2007 og náði sú friðlýsing til 188 hektara lands. Eftir friðlýsinguna í dag hafa því alls verið friðlýstir 723 hektarar innan bæjarlandsins og á grunnsævi en undirbúningur er hafinn að friðlýsingum 600 frekari hektara sem tilheyra Búrfellshraunum.
Auk þessa lét bæjarstjórn leggja hverfisvernd á Grunnuvötn sem útivistarsvæði og grannsvæði Vífilstaðavatns, alls 222 ha.
Á árinu 2009 var Skerjafjörður friðlýstur sem búsvæði og nær friðlýsingin til fjöru og grunnsævis alls 427 hektara á sjó og landi. Nær sú friðlýsing einnig til fjöru og grunnsævis undan Garðaholti. Þá var Gálgahraun einnig friðlýst sem friðland alls 108 hektarar. Umrætt svæði er nyrsti hluti svokallaðra Búrfellshrauna sem runnu frá eldstöðinni Búrfelli fyrir rúmum 7000 árum.
Upplýsingar um friðlýst svæði á vef Umhverfisstofnunar