Sorphirða
Sorp frá heimilum er hirt á 10 daga fresti. Hvert heimili hefur fengið eina 240 l tunnu, en í fjölbýlishúsum er einnig möguleiki á 660 l gámum, fyrir hverjar þrjár íbúðir. Pappírstunnur verða tæmdar á 20 daga fresti.
Mögulegt er að fá aukatunnur en sorphirðugjald verður væntanlega í framtíðinni innheimt í samræmi við fjölda íláta.
Æskilegast er að staðsetja sorpílát í innbyggðum sorpgeymslum, en að öðrum kosti er nauðsynlegt að festa þau tryggilega, þó þannig að auðvelt sé fyrir sorphirðumenn að nálgast þau. Helst skal koma sorpílátum fyrir götumegin við hús og þannig, að leiðin að þeim sé greið og auðvelt sé að aka þeim að götu. Á vetrum ber húseigendum að hreinsa snjó frá sorpgeymslum og þeirri leið sem flytja þarf sorpílát um innan lóðar.
Gámaþjónustan hf. s: 535 2500 sér um sorphirðu á Álftanesi.
Íslenska gámafélagið s. 577 5757, sér um sorphirðu í öðrum hverfum Garðabæjar skv. samningi sem tók gildi frá og með júlí 2007.
Upplýsingar um sorphirðu veitir:
Þjónustuver Garðabæjar, s. 525 8500
Sorphirðudagatal fyrír Álftanes 2013
Sorphirðudagatal fyrir önnur hverfi Garðabæjar 2013