Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Pappírstunnur

Ný pappírstunna í Garðabæ - Pappír er ekki rusl!

Garðabær hefur ákveðið að auka endurvinnslu á sorpi frá heimilum í bænum með innleiðingu á sérstakri pappírstunnu fyrir pappírsúrgang.

Athugið! Afhending pappírstunna dregst fram í júní.


Tunnuskýli - lausnir fyrir fjölbýli og sérbýli

Markmiðin eru:

  • Að auðvelda flokkun á sorpi
  • Skapa umhverfisvænna samfélag í takt við stefnu sveitarfélagsins í umhverfismálum
  • Fá alla íbúa bæjarfélagsins til að auka flokkun á úrgangi
  • Draga úr magni urðaðs úrgangs.

Hvenær fáum við pappírstunnuna?

Nýja endurvinnslutunnan verður í flestum tilfellum afhent í maí. 
Garðabæ hefur verið skipt í sex bæjarhluta. Fulltrúar Íslenska gámafélagsins munu ganga í  fjölbýlishús og fræða íbúa um hið nýja fyrirkomulag og leiðir til aukinnar endurvinnslu. Fulltrúar Íslenska gámafélagsins munu hafa samband og óska eftir húsfundi í fjölbýlum til fræðslu og til að ákveða staðsetningu og rými pappírstunna.

Einnig verður íbúum afhentur upplýsingabæklingur þar sem fram koma nauðsynlegar upplýsingar um endurvinnslutunnuna og hið nýja fyrirkomulag. Starfsmenn bæjarins munu einnig ganga í hús og merkja allar tunnur hjá heimilum bæjarins, merktar þannig fyrir almennt sorp og hin fyrir pappírsúrgang.

Tunnur verða merktar og afhentar í áföngum:

1. 5. mars     Flatir, Ásgarður, Fitjar, Hólar, Vífilsstaðir, Urriðaholt.
2. 19. mars   Ásar, Grundir, Sjáland, Prýði, v/Álftanesveg.
3. 2. apríl     Garðatorg, Tún, Mýrar, Móar, Byggðir, Neðri Lundir.
4. 16. apríl   Efri-Lundir, Holtsbúð, Búðir, Bæjargil, Hnoðraholt.
5. 30. apríl   Arnarnes, Akrar, Hæðahverfi.
6. 14. maí    Álftanes, Garðahverfi, Hleinar. 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

Hvað má fara í pappírstunnuna?

Sléttur pappi Skrifstofupappír Fernur Dagblöð og tímarit Bylgjupappi

 

 

Í hana má setja allan pappírsúrgang, dagblöð, tímarit, fernur, eggjabakka, sléttan pappír, skrifstofupappír og bylgjupappa.

Sléttur pappír er til dæmis í umbúðum utan af morgunkorni, ýmsum skyndiréttum, kexi, þvottaefni og þess háttar. Bylgjupappi er til að mynda pitsukassar og pappakassar.

Veggspjald sem sýnir hvað má fara í pappírstunnuna

Af hverju grá pappírstunna í stað blárra?

Ákveðið er að nota gráar tunnur við innleiðingu tveggja tunnu kerfis í Garðabæ, en ekki bæta við nýrri blárri að lit við heimili bæjarins.

Við innleiðingu tveggja tunnu kerfis hjá Sorpu bs. var hugmyndin sú að öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu gerðu innkaup á nýjum sérstökum „bláum“ tunnum. Hér í Garðabæ vildum við gæta fyllstu hagkvæmni og var það talinn óþarfa kostnaður að kaupa inn bláar tunnur, sérstaklega þar sem bærinn á gráar tunnur til á lager. Auk þess skera bláar tunnur sig óþarflega mikið úr umhverfinu við hlið grárra tunna við hýbýli fólks.

Merking og afhending

Í einbýlishúsum, raðhúsum og parhúsum sem í dag hafa eina gráa tunnu er fyrirhugað að bæta við annarri grárri tunnu fyrir pappír. Hjá þeim heimilum sem hafa í dag tvær gráar tunnur verður önnur tekin undir pappírsúrgang. Tunnur sem ætlaðar eru fyrir pappír verða merktar með sérstökum límmiðum.

Hvað með fjölbýlin?

Dreifibréf hefur verðið sent til hússtjórna fjölbýlishúsa með ósk um samstarf og samráð. Garðabær hefur fengið núverandi sorphirðuverktaka þ.e. Íslenska Gámafélagið til aðstoðar við innleiðingu tveggja tunnu kerfisins. Fulltrúar verktakans munu hafa samband og óska eftir húsfundi í fjölbýlum til fræðslu og til að ákveða staðsetningu og rými pappírstunna. Í þeim fjölbýlishúsum sem hafa í dag, t.d. þrjú kör verður eitt þeirra merkt fyrir pappír. Starfsmenn Garðabæjar munu merkja körin með sérstökum límmiðum frá Sorpu bs. 
 

Auglýsing um pappírstunnuna.

 

 

 
 

English
525 8500
Hafðu samband