Vistunarmat -stofnanavistun
Þann 1. janúar 2008 var framkvæmd vistunarmats breytt á þann veg að annars vegar er um að ræða vistunarmat fyrir hjúkrunarrými, reglugerð nr. 1262/2007 (á vegum landlæknisembættis) og hinsvegar mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými, reglugerð nr.543/2008 (á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis).
Sameiginlegt markmið reglugerðanna beggja er að gera skuli fólki kleift að búa á eigin heimili utan stofnana eins lengi og unnt er með viðeigandi heilbrigðis- og félagsþjónustu og að ekki sé sótt um stofnanaþjónustu fyrr en fullreynt hefur verið með önnur úrræði.
Vistunarmat í dvalarrými miðast við 67 ára aldur en vistunarmat í hjúkrunarrými er ekki aldurstengt.
Sérstök athygli er vakin á því að við vistun, bæði í hjúkrunar- og dvalarrými verða breytingar á greiðslum lífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins og renna greiðslur beint til viðkomandi stofnunar, en viðkomandi lífeyrisþegi heldur eftir tekjum, t.d. hluta af lífeyrissjóði eða vasapeningum, í samræmi við reglur TR. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér greiðsluþátttöku og kostnað við stofnanavistun.
Umsóknir um vistunarmat í hjúkrunarrými berist til:
Vistunarmatsnefndar höfuðborgarsvæðisins,
Álfabakka 16
109 Reykjavík
Umsóknareyðublað og upplýsingar á vef landlæknis, www.landlaeknir.is
Er vistunarmatsnefnd hefur tekið á móti umsókn sér hún um að afla þeirra gagna sem þörf er á, svo sem upplýsingum frá heimaþjónustu og heimahjúkrun. Fyrirspurnum er hægt að beina til Unnar K. Sigurðardóttur, hjúkrunarfræðings og starfsmanns vistunarmatsnefndar í síma 585-1300
Umsóknir um mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými berist til:
Matsteymi fyrir dvalarrými á höfuðborgarsvæðinu
Síðumúla 39
108 Reykjavík.
Umsóknareyðublað og nánar um mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými á vef félagsmálaráðuneytis, www.felagsmalaraduneyti.is
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um dvalarrými er hægt að nálgast hjá starfsmanni öldrunarþjónustu í því sveitarfélagi sem umsækjandi býr í. Samkvæmt reglugerðinni er gert ráð fyrir að fagmenntaður starfsmaður sveitarfélags meti stöðu umsækjanda og fari yfir umsóknina með honum og fylli út þau fylgiskjöl sem nauðsynlegt er að fylgi umsókn til að fá allar upplýsingar til að hægt sé að afgreiða umsóknina.
Í Garðabæ er hægt að fá upplýsingar hjá Herdísi Hjörleifsdóttur, öldrunarfulltrúa, Jónshúsi, í síma 512-1551.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á herdishj@gardabaer.is