8. fundur
8. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
08.06.2026
Kl. 10:00 - 11:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Case number 2405208
01
Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsóknin felur í sér breytingar á áður samþykktum aðaluppdráttum atvinnuhúsnæðis við Spildu A í landi Grundar þar sem nú er gert ráð fyrir veislusal og geymslurýmum. Skipulagsstjóri vísar umsókninni til skoðunar hjá umhverfissviði.
Case number 2604571
02
Steinprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skyggni byggingar fer út fyrir byggingarreit en í deiliskipulagi Garðahrauns er kveðið á um að hús skulu vera innan byggingarreits og gildir það einnig um skyggni.
Skipulagsstjóri bendir á að skyggni nær talsvert út fyrir byggingarreit að sunnanverðu og kallar því á deiliskipulagsbreytingu.
Case number 2409044
03
Mávanes 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum að íbúðarhúsinu að Mávanesi 13.
Útfærslu hefur verið breytt frá auglýstri tillögu að breytingu deiliskipulags og er bátaskýli nú staðsett innan byggingarreits með tengingu við íbúðarhúsið.
Þar sem að tillagan gerir nú ráð fyrir viðbyggingu sem er innan byggingarreits og tengd íbúðarhúsinu með beinum hætti telst tillagan í samræmi við deiliskipulag Arnarness.
Tæknirými nær lítillega út fyrir byggingarreit að norðanverðu samkvæmt uppdrættinum. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu gerði ráð fyrir breytingu byggingarreits hvað þá viðbyggingu varðar og voru ekki gerðar athugasemdir við þann þátt málsins.
Nú hefur tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerði ráð fyrir breytingu á lögu lóðar og staðsetningu bátaskýlis að hluta til utan lóðarmarka verið dregin til baka.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða aðaluppdrætti.
Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað varðar tæknirými sem nær lítillega út fyrir byggingarreit.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Case number 2605411
04
Teistunes 1 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Arnarness vegna stækkunar á byggingarreit við Teistunes 1.
Skipulagsstjóri metur tillögina sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Kríunesi 1 og 4, Súlunesi 3 og 5 og Þernunesi 3 og 5.
Case number 2605366
05
Stígar - framkvæmdarleyfi - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna gerðar göngu- og hjólastígs vestan Hafnarfjarðarvegar sem nær frá Lyngás að Álftanesvegi. Lega stígs er í samræmi við gildandi aðalskipulag. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdarleyfis í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem er í samræmi við framlögð gögn. Um ákvörðun skipulagsstjóra víasast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Samhliða er lögð fram embættisafgreiðsla skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar vegna umsóknar Betri Samgangna um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdin felur í sér að útbúa aðskildan hjóla- og göngustíg að sveitarfélagamörkum Garðabæjar (Súlunes - Kópavogsdalur).
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu framvæmdarleyfis að undangenginni grenndarkynningu fyrir lóðarhafa Súluness 24, 25, 26, 27 og 33.
Case number 2605154
06
Sunnakur 1 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Lagðir fram lóðaruppdrættir fyrir Sunnakur 1. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
Case number 2309448
07
Sunnuvellir 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppfærðir uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Sunnuvelli 2.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.