Skip to content
EN

47. (1715). fundur

08.12.2015
Bæjarráð Garðabæjar

47. (1715). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

08.12.2015

Kl. 08:00 - 08:40

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Case number 1512006

01

Bréf Reykvískra lögmanna vegna rammasamnings um akstur fyrir fatlaða, dags. 30.11.15.

Case number 1512012

02

Bréf Fjölís vegna samnings um afritun nótna og annars höfundarréttarvarins efnis, dags. 23.11.15.

Case number 1512039

03

Erindi FS- Torgs um heimild til að veðsetja lóðina við Garðaprýði 7.

Bæjarráð samþykkir að veita lóðarhafa heimild til að veðsetja lóðina vegna lántöku að hámarki kr. 7.500.000.

Case number 1510195

04

Bréf velferðarráðuneytis um málefni Ísafoldar, dags. 02.12.15.

Lagt fram ofangreint bréf þar sem fram kemur að ráðuneytið hafnar að greiða kröfu Garðabæjar um endurgreiðslu á kostnaði vegna rekstrar hjúkrunarheimilisins Ísafoldar umfram daggjöld sem einhliða eru ákvörðuð af ráðherra.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með ráðuneytinu til að ræða um framhald á starfsemi Ísafoldar.

Fylgiskjöl

Case number 1305065

05

Endurmat á faglegum og fjárhagslegum forsendum yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks - staða mála.

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi samning um endurmat á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk og sagði frá fundi í bakhópi Sambandsins. Þá gerði félagsmálastjóri grein fyrir stöðu mála varðandi NPA samninga.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra varðandi framlengingu á NPA samningum.

Case number 1512092

06

Tilkynning frá velferðarráðuneytinu um nýtt frumvarp til laga um húsnæðisbætur, dags. 03.12.15.

Case number 1503196

07

Mat á áhrifum byggingar Urriðaholtsskóla og fjölnota íþróttahúss á fjárhag Garðabæjar - drög 3. desember 2015.

Lögð fram drög að greinargerð í vinnslu um mat á áhrifum byggingar Urriðaholtsskóla og fjölnota íþróttahúss á fjárhag Garðabæjar.