Skip to content
EN

27. (1695). fundur

14.07.2015
Bæjarráð Garðabæjar

27. (1695). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

14.07.2015

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Case number 1306040

01

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins ásamt þróunaráætlun 2015-2018, dags. 30.06.15.

Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar þar sem fram kemur að stofnunin hefur staðfest nýtt svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið. Við gildistöku þess falla úr gildi svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 og svæðisskipulag vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 1999.

Fylgiskjöl

Case number 1507068

02

Bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar varðandi ársreikning 2014, dags. 02.07.15.

Case number 1507088

03

Minnisblað bæjarritara varðandi ný lög um verndarsvæði í byggð, dags. 08.07.15.

Bæjarráð vísar minnisblaðinu til kynningar í skipulagsnefnd.

Fylgiskjöl

Case number 1503138

04

Fundargerð SSH, dags. 08.06.15.

Case number 1505291

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi efra svæðis miðbæjar vegna lóðarinnar við Garðatorg 6.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýst verði samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breyting á deiliskipulagi miðbæjar vegna lóðarinnar við Garðatorg. 6. Í tillögunni felst að heimilt verði að hafa íbúðir á 2. og 3. hæð. Varðandi kvöð um bílastæði skal gera ráð fyrir a.m.k. 0,5 stæði á íbúð í kjallara.

Fylgiskjöl

Case number 1506043

06

Tillaga umhverfisnefndar varðandi snyrtilegt umhverfi 2015.

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2015.

Case number 1502378

07

Umsókn bæjarverkfræðings um framkvæmdaleyfi fyrir samgöngustíg yfir Arnarneshæð, dags. 10.07.15.

Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir göngu- og hjólastíg yfir Arnarneshæð milli Hafnarfjarðarvegar og lóða við Hegranes og Súlunes. Stígurinn er í samræmi við gildandi deiliskipulag Arnarness sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. apríl 2014 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda 8. maí 2014.

Fylgiskjöl

Case number 1409324

08

Tilboð í framkvæmdir við gatnagerð í Urriðaholti.

Lögð fram tilboð sem bárust í gatnagerð í Urriðaholti en tilboðin hafa verið yfirfarin.

Loftorka Reykjavík ehf. kr. 88.577.500

Wiium ehf. kr. 82.127.600

Lóðaþjónustan ehf. kr. 82.540.000

Gott verk ehf. kr. 76.389.808

Kostnaðaráætlun hönnuða kr. 84.902.000

Lagt fram minnisblað Eflu um yfirferð tilboða þar sem sérstaklega er gerð grein fyrir upplýsingum um lægstbjóðanda.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við lægstbjóðanda, Gott verk ehf. á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Fylgiskjöl

Case number 1501381

09

Bréf upplýsinga- og menningarfulltrúa varðandi niðurstöður á opnum fundi um menningarmál, dags. 10.07.15.

Case number 1507121

10

Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytisins varðandi tillögu að skoðunarhandbókum, dags. 07.07.15.

Case number 1507058

11

Bréf Vinnueftirlits ríkisins um aukið eftirlit með byggingarstarfsemi, dags. 06.07.15.