35. (1801). fundur
35. (1801). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
19.09.2017
Kl. 08:00 - 08:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Case number 1707200
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðarinnar við Steinás 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breyttrar notkunar bílgeymslu o.fl. á lóðinni við Steinás 3.
Case number 1707038
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi heimild til fráviks frá skipulagsskilmálum vegna umsóknar um byggingarleyfi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 32.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum er varða uppbrot úthliða við Urriðaholtsstræti 32. Um er að ræða óverulegt frávik sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Case number 1709181
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna einbýlishúsalóða við Víkurgötu.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna einbýlishúsalóða við Víkurgötu samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
Case number 1709140
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu umsóknar um byggingarleyfi vegna lóðarinnar við Hákotsvör 8.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús að Hákotsvör 8 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Case number 1706267
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóða við Keldugötu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturluta Urriðaholts þar sem lagt er til fjölgun íbúða í fjölbýlishúsum við Keldugötu.
Case number 1702066
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu svæðisskipulagsnefndar um auglýsingu á breytingu á svæðisskipulagi vegna Borgarlínu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna Borgarlínu og heimila auglýsingu á tillögunni samkvæmt 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Case number 1709157
07
Bréf Lótushúss um blómlegt Garðatorg, dags. 07.09.17.
Lagt fram bréf Lótushúss þar sem þakkað er fyrir blóm sem hafa verið til mikillar prýði á Garðatorgi í sumar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma þakklætinu á framfæri við starfsmenn garðyrkjudeildar bæjarins.
Fylgiskjöl
Case number 1707193
08
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um breytingu á reglugerðum um fjármál sveitarfélaga, dags. 12.09.17.
Case number 1709193
09
Bréf Náttúrufræðistofnunar Íslands um ritið Vistgerðir Íslands, dags. 08.09.17.
Case number 1709202
10