Skip to content
EN

11. (1777). fundur

21.03.2017
Bæjarráð Garðabæjar

11. (1777). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

21.03.2017

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Case number 1605502

01

Viðauki 1-4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 1-4 við fjárhagsáætlun 2017.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2017 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 1 kr. 242.000.000 Hækkun launa grunnskólakennara

Viðauki 2 kr. 29.300.000 Hækkun launa tónlistarkennara

Viðauki 3 kr. 32.700.000 Hækkun launa leikskólakennara

Viðauki 4 kr. (200.000.000) Lækkun varasjóðs

Viðauki 4 kr. (104.000.000) Hækkun staðgreiðslu útsvars

Fylgiskjöl

Case number 1703142

02

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis um stefnumótun Æskulýðsráðs í æskulýðsmálum, dags. 28.02.17.

Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í stofnunum og nefndum bæjarins sem starfa á sviði barna og ungmenna.

Fylgiskjöl

Case number 1703156

03

Afgreiðsla leikskólanefndar um breytingu á reglum um Þróunarsjóð leikskóla 2017.

Bæjarráð samþykkir tillögur leikskólanefndar um breytingar á reglum um Þróunarsjóð leikskóla á þann hátt að úthlutun verði einu sinni á ári í stað tvisvar áður.

Case number 1703152

04

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars), 120. mál., dags. 14.03.17.

Case number 1703174

05

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgangna (innleiðing alþjóðlegra skuldbindinga, EES-reglur), 234 mál., dags. 15.03.17.

Case number 1703180

06

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um útlendinga (frestun réttaráhrifa ofl.) 236 mál., dags. 16.03.17.

Case number 1703135

07

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um orlof húsmæðra (afnám laganna), 119. mál., dags. 10.03.17.

Bæjarráð lýsir yfir stuðningi við framkomið frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra.

Fylgiskjöl

Case number 1703183

08

Skipun starfshóps til að undirbúa byggingu fjölnota íþróttahúss.

Afgreiðslu frestað.

Case number 1703185

10

Bréf CISV varðandi afnot af skólahúsnæði vegna sumarbúða, ódags.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Case number 1610095

11

Bréf Ferðamálastofu um úthlutun styrks úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2017, dags. 16.03.17.

Í bréfinu er tilkynnt um styrkveitingu að fjárhæð kr. 9.950.000 úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2017 til framkvæmda við gerð bílastæða í Heiðmörk við upphaf gönguleiðar á Búrfell.

Fylgiskjöl

Case number 1703188

12

Bréf garðyrkjustjóra varðandi gjaldskrá skólagarða og matjurtagarða 2017, dags. 17.03.17.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu garðyrkjustjóra um gjaldskrá skólagarða og matjurtagarða sumarið 2017.

Skólagarðar í Silfurtúni kr. 4.500

Matjurtagarðar í Hæðagarði kr. 4.500

Fylgiskjöl

Case number 1410266

13

Tilboð í framkvæmdir við lóða Urriðaholtsskóla.

Bæjarverkfræðingur upplýsti að lægst bjóðandi uppfyllir ekki skilmála útboðslýsingar um fjárhagslega stöðu.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næstlægst bjóðanda Garðyrkjuþjónustunnar ehf. að fjárhæð kr. 213.892.500 með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.