Skip to content
EN

32. fundur

26.08.2014
Bæjarráð Garðabæjar

32. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

26.08.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Case number 1408539

01

Ársskýrsla leikskóla í Garðabæ skólaárið 2013-2014.

Lögð fram og vísað til leikskólanefndar.

Case number 1408479

02

Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi reiðgötu um Grunnuvatnaleið, dags. 15.08.14.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 og til vinnu við endurskoðun aðalskipulags.

Case number 1408569

03

Bréf Sigurðar Kára Kristjánssonar hdl. varðandi viðræður um kaup á heimalandi Selskarðs, dags. 21.08.14.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Case number 1408507

04

Drög að samþykktum fyrir lýðræðis-, jafnréttis- og forvarnanefnd.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samþykktir fyrir lýðræðis-, jafnréttis- og forvarnanefnd.

Case number 1408494

05

Tillaga um breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar, dags. 19.08.14.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu um breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar vegna breytinga á ákvæði um fastanefndir.

Case number 1406208

06

Tillaga M- lista um heimild til tilnefningar áheyrnarfulltrúa í nefndum, dags. 20.08.14.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum (ÁHJ,SHJ,SG) gegn tveimur (GEH,SE) að leggja til við bæjarstjórn að hafna tillögu M- lista um heimild til tilnefningar áheyrnarfulltrúa í fastanefndum.

Case number 1408528

07

Bréf Mannvirkjastofnunar varðandi úttekt á Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins 2014, dags. 19.08.14.

Lagt fram.

Case number 1408396

08

Umsókn um byggingarleyfi - Skeiðakur 8.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar garðveggs á lóðarmörkum lóðarinnar við Skeiðakur 8.

Case number 1408525

09

Umsókn um byggingarleyfi - Draumahæð 2.

Afgreiðslu frestað.

Case number 1408558

10

Umsókn um byggingarleyfi - Rjúpnahæð 10.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna stoðveggjar við lóðarmök lóðarinnar við Rjúpnahæð 2.

Case number 1407411

11

Umsókn um byggingarleyfi - Hellagata 31

Afgreiðslu frestað.

Case number 1408600

12

Tilboð í stofnstíg vestan Hafnarfjarðarvegar.

Lögð fram eftirfarandi tilboð í gerð stofnstígs vestan Hafnarfjarðarvegar milli $line$$line$Loftorka ehf. kr. 18.615.000$line$Gleipnir - verktakar kr. 18.788.150$line$SS - verktakar ehf. kr. 19.840.500$line$ÍAV hf. kr. 35.682.599$line$$line$Kostnaðaráætlun kr. 24.084.000$line$$line$Bæjarráð samþykkir tilboð lægstbjóðanda Loftorku ehf. og felur bæjarverkfræðingi að ganga til samninga um verkið.

Case number 1405089

13

Árshlutareikningur Strætó bs, 30.06.14.

Lagður fram.

Case number 1406360

14

Staða málaflokka janúar-júní 2014.

Á fund bæjarráðs mætti fjármálastjóri og gerði grein fyrir yfirliti um stöðu málaflokka fyrir tímabilið janúar - júní 2014.