Skip to content
EN

19. (2214). fundur

26.05.2026
Bæjarráð Garðabæjar

19. (2214). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

26.05.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - varamaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Case number 2605152

01

Flataskóli, leyfi til niðurrifs hluta skólahúsnæðis.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að leyfa Garðabæ, kt. 570169-6109 að láta rífa niður hluta skólahúsnæðis Flataskóla á lóðinni Vífilstaðavegur, Flataskóli.

Case number 2605186

02

Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu.

Lögð fram viljayfirlýsing Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarness, mennta- og barnamálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins, vegna vinnu að mótun og uppbyggingu sérskólaúrræða fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu til lengri tíma.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að staðfesta samþykki Garðabæjar á fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.

Fylgiskjöl

Case number 2605205

03

Tilkynning frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála um stjórnsýslukæru nr. UUA2605006 - Borgarás 10, dags. 15.05.26.

Lögð fram kæra lóðarhafa Borgaráss 12 til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna afgreiðslu á kröfu um afturköllun byggingarleyfis og beitningu þvingunarúrræða vegna framkvæmda að Borgarási 10.

Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Case number 2605278

04

Evrópsk samgönguvika 2026.

Lagt fram erindi Umhverfis- orku og loftlagsráðuneytisins vegna evrópskrar samgönguviku sem haldin verður dagana 16.-22. september 2026.

Fylgiskjöl