4. fundur
4. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
18.11.2014
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Sigurður Bjarnason - aðalmaður
- Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Case number 1204176
01
Stjörnuhlaup Garðabæjar
Kynning Hlaupahóps Stjörnunnar á fyirkomulagi Stjörnuhlaupsins. Formlegt samkomulag við hópinn um að annast og þróa viðburðinn til næstu ára, lagt fram til kynningar.
Kynning Hlaupahóps Stjörnunnar á fyrirkomulagi Stjörnuhlaupsins. Formlegt samkomulag við hópinn um að annast og þróa viðburðinn til næstu var lagt fram. Samþykkta að leggja til við bæjarráð að skrifað verði undir það.
Case number 1411097
02
Yfirlit íþróttafulltrúa um ráðstöfun hvatapeninga árið 2013
Íþróttafulltrúi lagði fram kynningu á nýtingu hvatapeninga árið 2013 í Garðabæ. Fram kom að mjög dregur úr því að ungmenni nýti sér hvatapeninga eftir 15 ára aldur.
Case number 1411154
03
íþróttamaður Garðabæjar 2014
Umræða um fyrirkomulag verðlaunahátíðar.
Farið var yfir fyrirkomulag kjörs íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar og verðlaunaveitinga vegna framúrskarandi árangurs innanlands sem utan. Sendir hafa verið út tölvupóstar á öll félög og sérsambönd til að kalla eftir tilnefningum. Stefnt er að sama fyrirkomulagi og áður. Kjörinu verður lýst sunnudaginn 11. janúar kl. 13:00 í fimleikasalnum í Ásgarði. Veitingar verða að kjörinu loknu.
Case number 1402318
04
Ferðastyrkir 2014
Pétur Árni Hauksson kt. 050798-2759 U-17 Handbolti 4 landa mót Frakkland 29.10.2014$line$Hilmar Snær Örvarsson kt. 270700-3650 Skíði ÍF - IPCAS race Landgraaf Hollandi 15. nóv 2014
ÍTG samþykkir að veita 20.000,- kr ferðastyrk til eftirtalinna einstaklinga: $line$Pétur Árni Hauksson kt. 050798-2759 U-17 Handbolti 4 landa mót Frakkland 29.10.2014$line$Hilmar Snær Örvarsson kt. 270700-3650 Skíði ÍF - IPCAS race Landgraaf Hollandi 15. nóv 2014
Case number 1411093
05
Heimildarmynd um Stjörnuna
ÍTG fagnar þeim stórhug að ráðast í gerð heimildarmyndar um velgengni meistaraflokka Stjörnunnar í knattspyrnu og eftirminnilega framgöngu stuðningsmannafélags félagsins. Slík skráning á samtímasögu félagsins hefur mikið gildi, ekki síst þegar frá líður.
Case number 1410242
06
Beiðni um rekstrarstyrk vegna ársins 2015
Beiðni hestamannafélagsins Spretts var tekin fyrir en ákveðið að óska gagna um starfsemi liðins árs og hvernig styrkurinn var nýttur á þessu ári.
Case number 1304166
07
Sóti hestamannafélag
ÍTG leggur til að framlengja samstarfssamninginn við Sóta til ársins 2017.
Case number 1410363
08
Heilsueflandi samfélag - þátttaka Garðabæjar
Ákveðið var að afla upplýsinga um stöðu verkefnisins í Mosfellsbæ og reynslu þeirra af því sem og nánari upplýsinga frá embætti landlæknis.
Case number 1411099
09
Hvatapeningar fyrir eldri borgara
Erindi lagt fram til umræðu.
Case number 1402317
10
Önnur mál 2014
a) ....$line$b) ....
a) Kynnt var fjárhagsáætlun Garðabæjar eins og hún liggur fyrir núna áður en hún verður endanlega samþykkt af bæjarstjórn.$line$b) Samþykkt var að framlengja samstarfssamning við Taflfélag Garðabæjar til ársins 2017.