12. fundur
12. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
22.09.2015
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Tómas Björnsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Case number 1509051
01
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Irma Gunnarsdóttir 0402982319, FRÍ NM í fjölþraut Danmörku 12.-15. júní 2015
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Irmu Gunnarsdóttur 0402982319, vegna NM í fjölþraut Danmörku 12.-15. júní 2015.
Case number 1509050
02
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Irma Gunnarsdóttir 0402982319, FRÍ NM ungmenna í Finnlandi 28.-30. ágúst 2015
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Irmu Gunnarsdóttur 0402982319, vegna NM ungmenna í Finnlandi 28.-30. ágúst 2015.
Case number 1509252
03
Endurskoðun reglugerða
Til skoðunar eru reglugerðir ÍTG um Íþróttamann Garðabæjar og reglugerð um Hvatapeninga 2016
Rætt um reglugerðir íþróttamanns ársins og um hvatapeninga. Ákvarðanir teknar á næsta fundi.
Case number 1509253
04
Gúmmíkurl á leikvöllum
Umræða var tekin um gúmmíkurl í knattspyrnuvöllum og á leiksvæðum. Gögn hafa verið lögð fram um velli Garðabæjar.
Case number 1509254
05
Framkvæmdir við íþróttamannvirki
Samantekt á helstu viðhaldsverkefnum vegna íþróttamannvirkja í Garðabæ 2015
Minnisblað íþróttafulltrúa var lagt fram um helstu viðhaldsverkefni vegna íþróttamannvirkja í Garðabæ 2015.
Case number 1502323
06
Önnur mál ÍTG 2015
a. Fundartími ÍTG
b. Opnunartími Álftaneslaugar
a. Fundartími ÍTG verður á miðvikudögum þriðju viku hvers mánaðar kl. 17:00 Næsti fundur er þó áætlaður 14. október.
b. ÍTG samþykkir tillögu íþróttafulltrúa um vetraropnun Álftaneslaugar. Opnunartími Álftaneslaugar frá 1.október 2015 til 30. apríl 2016 verði 06:30 til 20:30 virka daga (var til 21:00) og 10:00 til 18:00 laugardaga og sunnudaga (var 09:00-19:00). Athugað verði með lengri sumaropnunartíma um helgar frá 7. maí til 1. september.