Skip to content
EN

4. fundur

17.11.2014
Leikskólanefnd Garðabæjar

4. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

17.11.2014

Kl. 17:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
  • Snævar Sigurðsson - aðalmaður
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
  • Marta Sigrún Sigurðardóttir - fulltrúi leikskólastjóra

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Case number 1409324

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2015

Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs kynnti helstu áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015. Leikskólar nýta um 31% af því sem rennur til fræðslumála. Gert er ráð fyrir kjarasamningshækkunum á árinu og um 5% hækkun á matarinnkaupum. Að öðru leyti er reksturinn óbreyttur frá þessu ári. Umræður urðu um gjaldskrá leikskóla og þjónustustig leikskólanna.

Case number 1203576

02

Holtsbúð 85 - Leiga

Farið yfir samning sem gerður var í kjölfar auglýsingu um leigu á Holtsbúð 85 fyrir starfsemi dagforeldra.

Case number 1306038

03

Samningur um Sprotasjóðsverkefnið: Kynheilbrigði og velferð á öllum skólastigum í Garðabæ

Þróunarverkefni um velferð barna í Garðabæ

Tillaga að verklagi Garðabæjar vegna vanrækslu, ofbeldis gegn börnum og áhættuhegðun sem unnin hefur verið í þróunarverkefninu Jafnrétti, kynheilbrigði og velferð lögð fram og rædd. Ánægja var meðal nefndarmanna um tillöguna að verklaginu og vonar nefndin að verkefnið fái brautargengi.

Case number 1410347

04

Samningur um starfsþróunarskóla

Samningur við Háskólann á Akureyri um starfsþróunarskóla

Samningur Garðabæjar og Háskólans á Akureyri lagður fram um vettvangsnám og æfingakennslu kennaranema í leikskólum í Garðabæ. Nefndin fagnar samningnum og vonar að hann verði til þess að fleiri leikskólakennaranemar kynni sér starf leikskóla í Garðabæ og hefji síðan störf þar að námi loknu.

Case number 1411101

05

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Sótt er um gæslu eins barns.

Elín Richardsdóttir kt. 030850-2709 fær leyfi til gæslu eins barns í sex mánuði.

Case number 1401167

06

Kynningar og önnur mál 2014

Erna Káradóttir kynnti starfsemi Litlu Ása og sýndi nefndarmönnum húsnæði hans.