Skip to content
EN

21. fundur

17.02.2021
Leikskólanefnd Garðabæjar

21. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

17.02.2021

Kl. 08:30 - 10:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður
  • Snævar Sigurðsson - varamaður

Starfsmenn

  • Halldóra Pétursdóttir - leikskólafulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Kristín Valgarðsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Benedikt D. Valdez Stefánsson - fulltrúi foreldra
  • Ína Sigrún Þórðardóttir - fulltrúi starfsmanna

Ritari

  • Halldóra Pétursdóttir

Dagskrá

Case number 2012379

01

Áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum

Áskorun frá Samtökum grænkera á Íslandi lögð fram til umfjöllunar. Í leikskólum Garðabæjar er lögð áhersla á fjölbreytt fæði þar sem grænmeti og ávextir eru á boðstólum fyrir börn á hverjum degi.

Case number 2009056

02

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020

Tekin var til umfjöllunar íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup sem lögð var fyrir 6. til 20. desember 2020. Leikskólanefnd lýsir ánægju með niðurstöður hennar og þakkar starfsfólki leikskóla vel unnin störf á krefjandi tímum.

Case number 2101105

03

Öryggismál í leikskólum

Leikskólanefnd var upplýst um framkvæmd úttekta á leikskólalóðum og hvernig staðið verður að umbótum í kjölfar þeirra. Úttektir á vegum BSI munu fara fram í maí nk.

Case number 2102131

04

Áhersluþættir þróunarsjóðs leikskóla 2022

Áhersluþættir leikskóla settir fram. Að þessu sinni munu þeir beinast að vellíðan og vináttu, upplýsingatækni og þátttökumiðuðu námi.

Case number 2102139

05

Stytting vinnuvikunnar í leikskólum

Kynnt var framkvæmd vinnustyttingar á leikskólum Garðabæjar. Hver og einn leikskóli framkvæmdir vinnustyttingu í samræmi við niðurstöður kosninga innan viðkomandi skipulagsheildar.

Case number 2102145

06

Skóladagatal leik - og grunskóla 2021 til 2022

Skóladagatal lagt fram og samþykkt.