30. fundur
30. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
11.01.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Case number 1606183
01
Vöktun á efnabúskap Vífilsstaðavatns og Urriðavatns í Garðabæjar 2016
Skýrsla frá Heilbrigðiseftirliti um Vöktun á efnabúskap Vífilsstaðavatns og Urriðavatns í Garðabæ 2016.
Verkefnið var unnið að ósk umhverfisnefndar í vöktunaráætlun vatnanna.
Vegna byggingaframkvæmda og annarrar uppbyggingar á vatnasviði Urriðavatns og vegna álags af völdum innstreymis næringarefna til Vífilsstaðavatns og fyrirvara við flokkun þess er lagt til að mælingar verði endurteknar árin 2017 og 2018.
Vötnin bæði geta talist ósnortin (A)
Nefndin samþykkir áframhaldandi vöktun.
Fylgiskjöl
Case number 1611136
02
Vötn, tjarnir og votlendi - fuglatalningar 2017
Verk- og kostnaðaráætlun frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Dr. Ólafi Einarssyni vegna fuglatalninga í Garðabæ 2017.
Svæðin eru: Vífilsstaðavatn, Urriðavatn, Vatnsmýri við Vífilsstaði, Bessastaðatjörn, Kasthúsatjörn og Breiðabólsstaðatjörn.
Útgáfa skýrslu verður í árslok 2017.
Samþykkt að semja um fuglatalningar við viðkomandi aðila.
Case number 1311624
03
Skýrsla fornleifarannsókna á Hofsstöðum
Verk- og kostnaðaráætlun frá Ragnheiði Traustadóttur hjá Antikva ehf. um fornleifarannsókn á Hofsstöðum 1994-2000. Verkefnið sem snýst um vinnslu gagna hefur verið í vinnslu frá árinu 2013 og er samstarfsverkefni umhverfisnefndar og menningar- og safnanefndar.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að þessu verkefni ljúki sem fyrst.
Case number 1606494
04
Styrkir úr Orkusjóði
Ráðgjafanefnd Orkusjóðs fjallaði um 33 umsóknir á grundvelli ákvæða reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð og verklagsreglur nefndarinnar nr. 654, 29. júní 2016. Nefndin afgreiddi tillögur sínar um afgreiðslu umsóknanna til iðnaðar- og viðskiptaráðherra á fundi 22.11.16.
Garðabæ er veittur styrkur til uppsetningar á einni hraðhleðslustöð við Garðatorg. Styrkupphæðin nemur 50% af áætluðum kostnaði við hraðhleðslustöð.
Verkefnið í vinnslu áfram.
Fylgiskjöl
Case number 1612021
05
Hleðslustöð fyrir rafbíla
Staðsetning hleðslustöðvar fyrir rafbíla sem Orkusalan gefur öllum sveitarfélögum.
Frestað.
Case number 1611066
06
Umhverfisstefna - endurskoðun
Drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu Garðabæjar.
Case number 1701094
07
Líffræðilegur fjölbreytileiki í Garðabæ
Lögð fram drög að líffræðilegri fjölbreytni í Garðabæ með flokkun landgerða.
Case number 1701115
08
Fornminjasjóður - umsókn 2017
10. janúar 2017 var umsókn um styrk til jarðsjármælinga á Bessastöðum á Álftanesi send til fornminjasjóðs.
Case number 1701151
09
Uppgræðsla á beitarhólfi í Krísuvík
Frá Landgræðslu ríkisins barst áfangaskýrsla um uppgræðslu í beitarhólfi í Krísuvík árið 2016 og áætlun fyrir árið 2017 ásamt styrkbeiðni.
Lagt fram.
Case number 1701004
10
Markmið um 50% endurvinnslu heimilisúrgangs árið 2020
Bréf frá Umhverfisstofnun, dags. 29.12.16. til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu með afriti til Sorpu bs. og umhverfis- og auðlindarráðuneytis.
Svarbréf barst sömu aðilum frá framkvæmdastjóra Sorpu bs. þann 09.01.17.
Málið rætt.