Skip to content
EN

15. fundur

28.08.2019
Umhverfisnefnd Garðabæjar

15. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu

28.08.2019

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
  • Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
  • Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eva Ósk Ármannsdóttir - skjalastjóri
  • Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir

Dagskrá

Case number 1810055

01

Tillaga um að draga úr plastmengun í rekstri Garðabæjar og stofnana á vegum bæjarins.

Áframhaldanandi kynning á stöðu verkefnisins. Stefnt á útgáfu stefnu á degi íslenskrar náttúru.

Case number 1812022

02

Garðahraun efra-Fólkvangur, deiliskipulag

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri fór yfir athugasemdir sem hafa borist. Umhverfisnefnd telur mjög mikilvægt að Garðahraun efra haldist að mestu óraskað og njóti verndar. Umhverfisnefnd leggur til að stígurinn næst Hraunhólum verði felldur úr deiliskipulagstillögu og vísar þar í athugasemd og einnig stikaða leiðin við Hádegishól.

Umhverfisnefnd leggur áherslu á að við gerð stígs í gegnum hraunið verði umhverfisrask sem minnst og vandað til vals á ljósbúnaði. Samhliða verði farið í að friðlýsa allt hraunið út fyrir hraunjaðar.

Case number 1903082

03

Bæjargarður, stígakerfi, dsk breyting.

Umhverfisnefnd leggur til að stígurinn næst Hraunhólum, sbr. lið 2 verði felldur úr deiliskipulagstillögu.

Case number 1907242

04

Tillaga að friðlýsingu svæðis í verndarflokki rammaáætlunar - Brennisteinsfjöll

Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Case number 1908055

05

Umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála.

Lagt fram.

Case number 1907133

06

Stefna um meðhöndlun úrgangs

Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir.

Case number 1906222

07

Náttúruspjöll í Helgafelli

Umhverfisnefnd harmar eyðilegginguna og þakkar viðbragðsaðilum fyrir skjót og góðar úrbætur.

Case number 1902349

08

Grár dagur - Átaksverkefni fyrir bættum loftgæðum

Umhverfisnefnd er fylgjandi þessu verkefni.