8 (22-26). fundur
8 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
08.03.2023
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
Ritari
- Linda Björk Jóhannsdóttir
Dagskrá
Case number 2009650
01
Áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns
Lagt fram
Case number 2302127
02
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2022
Hulda Hauksdóttir,deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnir Þjónustukönnun Gallup 2022
Case number 2303033
03
Hreinsunarátak 2023
Umhverfisnefnd leggur til að hreinsunarátakið og vorhreinsun lóða verði með sama sniði og undanfarin ár. Hreinsunarátakið mun fara fram dagana 24.apríl-8.maí Vorhreinsun lóða fer fram 8. - 19. maí. Götusópun hefst í apríl á aðalgötum og í maí verða íbúagötur sópaðar.
Case number 1906351
04
Mávar
Vegna ágangs sílamáva í Sjálandshverfi við Arnarnesvog leggur umhverfisnefnd til að íbúafundur verði haldinn í lok mars.
Case number 2104378
05
Samræming úrgangsflokkunar
Farið var yfir stöðu samræmingu úrgangsmála á höfuðborgarsvæðinu. Innleiðing á nýju flokkunarkerfi úrgangs hefst í vor, samhliða verða breytingar kynntar. Fjórum úrgangsflokkum verður safnað frá heimilum.
Case number 2205292
06
Loftgæðamælir
Linda kynnir kaup á loftgæðamæli. Heilbrigðiseftirlitið mælir með að mælirinn verði staðsettur á Garðaholti fyrstu tvö árin.
Case number 1703354
07
Hjóla og gönguteljari
Umhverfisnefnd samþykkir að kaupa gönguteljara til að setja upp við Urriðavatn.