Skip to content
EN

Sumaropnun á Álftanessafni

Events

Álftanessafn

Wednesday, June 24th, 2026 at 14:00 - 18:00

Wednesday, July 1st, 2026 at 14:00 - 18:00

Miðvikudagar = útifjör fyrir framan inngang bókasafnsins.

Í sumar (15.júní – 15.ágúst) verður opið á miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 14-18 á Álftanessafni sem er staðsett í Álftanesskóla gengið inn við innganginn sem snýr að Eyvindarstaðavegi.

Dagskrá

Miðvikudagar = útifjör fyrir framan inngang bókasafnsins. Krítar, húllahringir, stultur og fullt af fjöri.

Fimmtudagar = Ljósaborð og segulkubbar – fullkomið fyrir skapandi krakka. Einnig er Lestrardreki vikunnar dreginn út – bók í verðlaun í hverri viku.

Sumarlestur er lestrarátak fyrir börn á grunnskólaaldri. Markmiðið er að hvetja börnin til lesturs í sumarfríi skólanna svo þau viðhaldi og jafnvel auki við lestrarfærni sína. Lestrardagbækur og umsagnarmiðar eru aðgengilegir á Álftanessafni og eru umsagnarmiðarnir færðir vikulega yfir á Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi til þess að setja í sameignlega lukkukassann.

Lestrardreki vikunnar er svo dreginn út 22.júní – 20.ágúst og er bók í verðlaun.

Einnig verður boðið uppá skemmtilega nýjung, sem er eingöngu í boði á Álftanessafni, í sumar og það eru Ævintýrabakpokar fullir af skemmtun og fróðleik. Enginn Ævintýrabakpoki er eins og eru þeir fyrir krakka á aldrinum 3-13 ára, allt frá húsdýrum til himingeimsins. Hægt verður að fá Ævintýrapokana lánaða í 14 daga.

Öll eru hjartanlega velkomin að koma og njóta sumarsins á Álftanessafni.


English

This summer (June 15th – August 15th) Álftanessafn will be open on Wednesdays and Thursdays from 2-6pm at Álftanessafn, which is located in Álftanesskóli, enter at the entrance facing Eyvindarstaðaveg.

Schedule

Wednesdays = outdoor activities in front of the library entrance. Chalks, hula hoops, stilts and lots of fun.

Thursdays = Light boards and magnetic blocks – perfect for creative kids. There will also be a weekly Reading Dragon – a book as a prize every week.
Summer Reading is a reading initiative for children of primary school age. The goal is to encourage children to read during the summer school holidays so that they maintain and even increase their reading skills. Reading diaries and comment cards are available at Álftanessafn and the comment cards are transferred weekly to the Garðabær Library at Garðatorg to be placed in the common lucky box. The weekly reading dragon is then drawn June 22nd – August 20th and the prize is a book.
There will also be a fun novelty, which is only available at Álftanessafn, this summer and that is Adventure Backpacks full of fun and information. No Adventure Backpack is the same as these for kids aged 3-13, everything from farm animals to space. The Adventure Backpacks will be available for loan for 14 days.
Everyone is very welcome to come and enjoy the summer at Álftanessafn.