Fréttir og tilkynningar
Fréttir25.05.2026Hjólreiðastefna Garðabæjar
Hjólreiðastefna Garðabæjar leit dagsins ljós í vor en markmið stefnunnar er að skapa betri aðstæður til hjólreiða og bæta ímynd þeirra þannig að Garðbæingar á öllum aldri velji að fara fleiri ferðir á hjóli.
Tilkynningar22.05.2026Skilaboð til kattaeigenda á varptíma fugla
Að gefnu tilefni minnum við á að skv. samþykkt um kattahald í Garðabæ er umráðamanni kattar gert að taka tillit til fuglalífs á varptíma frá 15. apríl til 31. ágúst með því að hengja bjöllu á köttinn og eftir atvikum að takmarka útiveru hans.
Fréttir22.05.2026Um sumarstörf í Vinnuskóla Garðabæjar
Vinnuskólinn hefst fimmtudaginn 11. júní (fyrir 9. og 10. bekk) og mánudaginn 15. júní (fyrir 8. bekk). Hér má nálgast upplýsingar um sumarstörf hjá Vinnuskóla Garðabæja, m.a. upplýsingar um laun, vinnutíma, verkefni og önnur praktísk atriði.
Fréttir22.05.2026Símaráðgjöf um stuðnings- og öldrunarþjónustu
Nú er hægt að bóka tíma í símaráðgjöf til að fá upplýsingar um þá stuðnings- og öldrunarþjónustu sem Garðabær býður upp á.
Fréttir20.05.2026Áframhaldandi uppbygging barna- og unglingastarfs golfklúbbsins Odds
Golfklúbburinn Oddur og Garðabær hafa undirritað nýjan samstarfssamning til næstu tveggja ára sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu barna- og unglingastarfs klúbbsins.
Tilkynningar20.05.2026Lágur þrýstingur á kalda vatninu í Hnoðraholti
Vegna bilunar í búnaði er lágur þrýstingur á kalda vatninu í Hnoðraholti og Þorraholti. Óvíst hversu lengi en viðgerð stendur yfir.
Fréttir20.05.2026Niðurstöður íbúaþings um málefni eldra fólks kynntar
Fjallað var um niðurstöður íbúaþings um málefni eldra fólks í Garðabæ á tveimur kynningarfundum sem haldnir voru í Jónshúsi og Lambamýri.
Tilkynningar20.05.2026Kaldavatnslaust í Urriðaholtsstræti 9-15, 20. maí
Loka þarf fyrir kalt í Urriðaholtsstræti 9-15, miðvikudaginn 20. maí, frá kl:13:00 til 15:00.
Tilkynningar19.05.2026Ferðavagnar við skóla Garðabæjar
Að gefnu tilefni viljum við minna á að skólastarf er enn þá í fullum gangi og ferðavagna og útilegutæki á ekki að geyma á bílastæðum við skóla Garðabæjar.
Fréttir19.05.2026Opnað fyrir umsóknir um matjurtakassa 21. maí
Garðbæingum gefst kostur á að leigja matjurtakassa á fjórum stöðum í sumar. Opnað verður fyrir umsóknir fimmtudaginn 21. maí klukkan 08:30.
Tilkynningar19.05.2026Lokun við Urriðaholtsstræti 9-15
Vegna framkvæmda við veitulagnir þarf að þvera veg við Urriðaholtsstræti 9-15.
Fréttir17.05.2026Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ
Úrslit í sveitarstjórnarkosningum í Garðabæ 16. maí 2026 liggja fyrir. Kjörsókn í Garðabæ var 73,9% sem er töluvert meiri kosningaþátttaka en árið 2022 (64,1%).
Fréttir16.05.2026Kjörsókn í Garðabæ - nýjustu tölur
Hér á vef Garðabæjar verða settar inn tölur yfir daginn um kjörsókn vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar.
Fréttir15.05.2026Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí
Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar, er fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni við Skólabraut og Álftanesskóla við Breiðumýri. Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.
Fréttir14.05.2026Samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða
Garðabær, auk annarra sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins og tveggja ráðuneyta, hefur undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu.