Fréttir og tilkynningar
Fréttir28.04.2026Skólabygging Tónlistarskóla Garðabæjar stækkar
Fyrstu skóflustungurnar að nýrri viðbyggingu við Tónlistarskólann í Garðabæ voru teknar við hátíðlegt tilefni á dögunum. Áformað er að nýja aðstaðan verði tilbúin haustið 2027.
Fréttir22.04.2026Samstarfssamningur við Æskulýðsfélag Bessastaðasóknar undirritaður
Endurnýjaður samningur um æskulýðsstarf á vegum Æskulýðsfélags Bessastaðasóknar hefur verið undirritaður.
Fréttir22.04.2026Spennandi úrval sumarnámskeiða í Garðabæ
Fjölbreytt sumarnámskeið eru í boði fyrir börn í Garðabæ.
Fréttir21.04.2026Fyrsti hluti af langtímahættumati vegna hraunavár á Reykjanesskaga kominn út
Í dag komu út tvær skýrslur um langtímahættumat vegna hraunvár á Reykjanesskaga, en þær eru hluti af umfangsmiklu verkefni Veðurstofunnar í að meta heildstætt eldfjallavá á öllum Reykjanesskaganum.
Fréttir21.04.2026Hreinsunarátaki Garðabæjar ýtt úr vör
Hreinsunarátak Garðabæjar er hafið og stendur yfir til 4. maí. Bæjarfulltrúar voru heppnir með veður þegar þeir ýttu átakinu úr vör því sólin lét sjá sig.
Fréttir20.04.2026Nýr búsetukjarni rís í Hnoðraholti
Það var sannkölluð gleðistund þegar fyrstu skóflustungurnar að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Haustbraut í Hnoðraholti voru teknar.
Fréttir20.04.2026Áframhaldandi samstarf Garðabæjar og Stjörnunnar staðfest
Endurnýjaður samstarfssamningur Garðabæjar og Stjörnunnar var undirritaður við skemmtilegt tilefni í Hekluhöllinni, skömmu fyrir leik karlaliðs Stjörnunnar í handbolta í umspili fyrir sæti í Olís deildinni á næsta tímabili.
Fréttir20.04.2026Upplýsingar um umferðaróhapp – samantekt frá foreldrafundi 13. apríl
Meðfylgjandi er samantekt um upplýsingafund sem haldinn var vegna umferðarslyss sem varð 17. mars síðastliðinn.
Fréttir19.04.2026Garðaskóli sigraði Fjármálaleikana 2026
Garðaskóli bar sigur úr bítum í árlegri keppni Fjármálaleikanna 2026, sem haldnir voru níunda árið í röð í tilefni alþjóðlegrar fjármálalæsisviku.
Fréttir17.04.2026Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna
Púlsinn er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu.
Fréttir16.04.2026Skemmtileg dagskrá í tilefni sumardagsins fyrsta
Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá í Garðabæ í tilefni sumardagsins fyrsta. Skátafélagið Vífill sér um dagskrána.
Fréttir16.04.2026Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar
Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar hefst á mánudaginn.
Fréttir16.04.2026Upplýsingafundur með foreldrum í Urriðaholtsskóla
Mánudaginn 13. apríl var haldinn upplýsingafundur vegna umferðarslyss sem varð 17. mars síðastliðinn. Upplýsingafundurinn var haldinn í Urriðaholtsskóla og fengu foreldrar og forráðafólk þeirra barna sem voru í rútunni þegar slysið átti sér stað boð á fundinn.
Fréttir15.04.2026Lokun á Flóttamannavegi vegna framkvæmda
Loka þarf kafla á Flóttamannavegi frá og með mánudeginum 20. apríl vegna framkvæmda við nýtt hringtorg.
Fréttir14.04.2026Sex flokkar bjóða fram lista til sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ
Yfirkjörstjórn Garðabæjar hefur veitt viðtöku sex framboðum til sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ sem fram eiga að fara laugardaginn 16. maí nk.