Fréttir og tilkynningar
Fréttir03.08.2022Álftaneslaug lokuð í tvær vikur
Sundlaugin á Álftanesi verður lokuð frá og með 8. ágúst 2022 í um tvær vikur vegna viðhaldsvinnu við laugarnar og þrifa.
Fréttir02.08.2022Jarðskjálftahrina -íbúar hugi að lausa- og innanstokksmunum
Öflugir jarðskjálftar hafa fundist undanfarna sólarhringa á suðvesturhorninu. Í gærkvöldi reið skjálftahrina yfir sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu m.a. fundu vel fyrir. Íbúar eru hvattir til að huga að lausa- og innanstokksmunum.
Fréttir02.08.2022Samningur um byggingu 2. áfanga Urriðaholtsskóla undirritaður
Undirritaður hefur verið verksamningur milli Garðabæjar og ÞG verk vegna byggingu 2. áfanga Urriðaholtsskóla
Fréttir28.07.2022Hinsegin viðburðir í Garðabæ
Í tilefni hinsegin daga í byrjun ágúst verður boðið upp á viðburði á Bókasafni Garðabæjar og Hönnunarsafni Íslands. Söfnin verða skreytt regnbogafánum og hinsegin bókmenntir verða áberandi á bókasafninu.
Fréttir28.07.2022,,Komdu í göngu í Garðabæ"
Þótt veðrið í sumar hafi ekki verið með allra besta móti þá er samt alltaf gott gönguveður. Í Garðabæ eru margar skemmtilegar gönguleiðir bæði í þéttbýli sem og utan.
Fréttir28.07.2022Blómum prýtt hringtorg við Bessastaði
Stórt hringtorg sem markar aðkomu inn á Álftanesið, þar sem Álftanesvegur mætir Suðurnesvegi, Norðurnesvegi og Bessastaðavegi í átt að forsetasetrinu á Bessastöðum, hefur nú tekið á sig nýja og betri mynd með fallegum gróðri.
Fréttir27.07.2022Skólamálsverðir í grunn- og leikskólum Garðabæjar 2022-2025
Bæjarráð Garðabæjar samþykkti í vor að bjóða út framleiðslu og framreiðslu á mat fyrir alla grunnskóla Garðabæjar og hluta af leikskólum bæjarins fyrir tímabilið 2022-2025. Þriðjudaginn 26. júlí undirritaði bæjarstjóri Garðabæjar samninga við Skólamat annars vegar og Matartímann hins vegar um þessa þjónustu til næstu þriggja ára.
Fréttir21.07.2022Vel heppnuð lokasýning hjá Skapandi sumarstörfum
Skapandi sumarstörf í Garðabæ héldu lokasýningu fyrir gesti og gangandi á Garðatorgi miðvikudaginn 20. júlí sl. í yndislegu sumarveðri.
Fréttir21.07.2022Ánægja með stafræn aðgangskort í sundlaugar Garðabæjar
Stafræn sundkort í síma hafa verið í notkun síðan í apríl á þessu ári og er almenn ánægja notenda með kortin. Um 350 kort eru nú komin í notkun og fjölgar þeim stöðugt.
Fréttir19.07.2022Ferðavagnar og umferðaröryggi í Garðabæ
Nokkuð hefur borið á því að kvartað sé undan ferðavögnum (hjólhýsum, húsbílum, fellihýsum, eftirvögnum o.þ.h.) sem lagt er í íbúðargötur bæjarins. Hér má finna upplýsingar um hvað ber að hafa í huga við lagningu ferðavagna skv. umferðarlögum.
Fréttir12.07.2022Fjölbreytt verkefni Skapandi sumarstarfa hjá Garðabæ kynnt á lokasýningu 20. júlí
14 ungmenni hafa unnið að skapandi verkefnum í sumar og munu þau sýna afrakstur starfsins á lokasýningu miðvikudaginn 20. júlí kl. 17-20 á Garðatorgi.
Fréttir12.07.2022Nágrannavarsla er mikilvæg í sumarfríinu
Þegar margir eru að heiman í sumarfríinu er nágrannavarslan sérstaklega mikilvæg. Samvinna íbúa og nágranna um að fylgjast með húsum og öðrum eignum skiptir miklu máli.
Fréttir07.07.2022Fjölbreyttar smiðjur fyrir börn í sumar
Í sumar eru fjölbreyttar smiðjur í boði fyrir börn á Bókasafni Garðabæjar alla föstudaga á milli kl. 10 og 12.
Fréttir07.07.2022Ólafur G. Einarsson níræður
Ólafur G. Einarsson er varð 90 ára 7. júlí s.l. Ólafur er fyrrverandi sveitastjóri og oddviti Garðahrepps, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og heiðursborgari Garðabæjar.
Fréttir05.07.2022Garðabær í samstarf við Samtökin ‘78
Bæjarráð Garðabæjar samþykkti á fundi sínum í dag, 5. júlí að ganga til viðræðna við Samtökin ‘78 um samstarfssamning.