Fréttir og tilkynningar
Fréttir25.11.2022Ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi
Það var fallegt vetrarveður úti þegar leikskólabörn úr Garðabæ komu saman á Garðatorgi til að tendra ljósin á jólatrénu á Garðatorgi föstudaginn 25. nóvember.
Fréttir25.11.2022Jólaball, skapandi smiðjur og lifandi tónlist á Garðatorgi
Laugardaginn 26. nóvember frá 13-16 verður upphafi aðventu fagnað í Garðabæ með hátíð fyrir alla fjölskylduna.
Fréttir25.11.2022Nafnið Urri valið á nemendaþingi
Þann 17. nóvember var haldið svokallað nemendaþing í Urriðaholtsskóla fyrir nemendur í 5.- 8. bekk. Markmið þingsins var að fá hugmyndir frá nemendum hvernig þau vilja hafa félagmiðstöðina í Urriðaholtsskóla.
Fréttir24.11.2022Tilgangur og hlutverk almannavarna
Í vikunni var boðið upp á kynningu á tilgangi og hlutverki almannavarna, bæði á landsvísu og á höfuðborgarsvæðinu, fyrir fulltrúa í nýrri almannavarnanefnd á höfuðborgarsvæðinu. Einnig fengu fulltrúar í neyðarstjórnum sveitarfélaganna og bæjar- og borgarfulltrúar boð á kynningarfundina.
Fréttir23.11.2022Litla hryllingsbúðin
Á hverju ári setur félagsmiðstöðin Garðalundur upp metnaðarfullan söngleik þar sem ungmenni í Garðaskóla fá að njóta sín og sýna hæfileika sína. Í ár var Litla hryllingsbúðin sett upp.
Fréttir23.11.2022Formannsskipti í stjórn SSH
Aðalfundur SSH var haldinn föstudaginn 18. nóvember 2022 í Félagsgarði í Kjósarhreppi. Auk almennra aðalfundarstarfa urðu formannsskipti í stjórn SSH þar sem Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, við keflinu af Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra Garðabæjar.
Fréttir18.11.2022Viðburðir á aðventunni
Fjölmargir menningarviðburðir verða í boði á aðventunni í Garðabæ. Í viðburðadagatalinu á vef Garðabæjar er hægt að sjá nánari upplýsingar um hvern viðburð.
Fréttir18.11.2022Evrópsk Nýtnivika -fataskiptimarkaður
Dagana 19.-27. nóvember næstkomandi stendur evrópsk Nýtnivika yfir en markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs.
Fréttir15.11.2022Slökkviliðsmenn hvetja fólk til að efla eldvarnir á heimilunum
Eldvarnaátak slökkviliðsmanna um allt land hófst í gær. Slökkviliðsmenn hvetja fólk til að efla eldvarnir á heimilunum.
Fréttir11.11.2022Vill grenitréð þitt verða jólatré?
Þjónustumiðstöð Garðabæjar auglýsir eftir fallegum grenitrjám úr einkagörðum til að nota sem jólatré á opnum svæðum bæjarins.
Fréttir11.11.2022Rýnifundir almannavarna vegna Covid-19
Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eiga í góðu samstarfi um almannavarnir. Undanfarna daga hafa almannavarnir höfuðborgarsvæðisins staðið fyrir rýnifundum til að draga lærdóm af Covid-19 aðgerðunum með það að markmiði að vera betur undirbúin fyrir næstu vá.
Fréttir11.11.2022Tæplega 500 nemendur hlýddu á íslensk sönglög
Nemendur 5. og 6. bekkja úr öllum grunnskólum Garðabæjar nutu tónleika með baritónsöngvaranum Jóni Svavari Jósefssyni og Guðrúnu Dalíu Salomónsdóttur píanóleikara.
Fréttir11.11.2022Gatnagerð við Krók á Álftanesi
Í landi Króks mun rísa raðhúsabyggð sem er partur af skipulagi miðsvæðis Álftaness. Þessa dagana er gatnagerð að hefjast við svæðið Krók.
Fréttir09.11.2022Samstarfssamningur Garðabæjar og Samtakanna ´78
Þriðjudaginn 8. nóvember skrifuðu Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Daníel E. Arnarsson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 undir samstarfssamning um þjónustu samtakanna við Garðabæ.
Fréttir04.11.2022Nýr sviðsstjóri umhverfissviðs
Guðbjörg Brá Gísladóttir hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra umhverfissviðs Garðabæjar.