Fréttir og tilkynningar
Fréttir16.12.2022Íbúar hvattir til að kynna sér fjárhagsáætlun Garðbæjar
Íbúar eru hvattir til að kynna sér fjárhagsáætlun Garðabæjar en með áætluninni fylgdi greinargerð sem útskýrir helstu áherslur í áætluninni. Þá má einnig finna nokkur fræðandi myndbönd um fjárhagsáætlun Garðabæjar á vefnum.
Fréttir16.12.2022Fjölmargir tónleikar á aðventunni
Fjölmargir menningarviðburðir hafa verið í boði á aðventunni í Garðabæ og verða áfram í desember. Framundan eru tónleikar með Diddú ásamt blásarasextett, tónleikar Gospelkórs Jóns Vídalín og kertaljósatónleikar Camerarctica.
Fréttir16.12.2022Tunnuskipti vegna samræmds flokkunarkerfis hefjast í vor
Eins og fram hefur komið verður nýtt flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu innleitt á vormánuðum 2023 þar sem fjórum úrgangsflokkum verður safnað við hvert heimili.
Fréttir14.12.2022Nýtt umdæmisráð og barnaverndarnefndir lagðar niður
Þann 13. desember, skrifuðu bæjarstjórar Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarnesbæjar, Kjósarhrepps og framkvæmdastjóri SSH undir samning um rekstur sameiginlegs umdæmisráðs barnaverndar sem tekur til starfa nú um áramót.
Fréttir14.12.2022Úthlutun styrkja úr Sóley
Hinn 12. desember sl. fór fram úthlutun styrkja úr Sóleyju, styrktarsjóði Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, til nýsköpunarverkefna.
Fréttir09.12.2022Kynning á fjárhagsáætlun
Þriðjudaginn 6. desember sl. var haldinn opinn fundur í Sveinatungu á Garðatorgi 7 um fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023. Íbúar gátu komið á fundinn og fræðst um fjárhagsáætlunina þar sem Almar Guðmundsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði eins og rekstur og fjárhagsstöðu, þjónustu, fræðslumál, velferðarmál, framkvæmdir, umhverfi, menningu og mannlíf. Hægt er að horfa á fundinn á vef Garðabæjar.
Fréttir09.12.2022Nýta þarf hvatapeninga ársins fyrir áramót
Foreldrar/forráðamenn eru minntir á að nýta hvatapeninga ársins 2022 fyrir áramót en síðasti dagur til að skila inn kvittunum er 29.desember. Hvatapeningar ársins 2022 eru 50.000 krónur á barn.
Fréttir08.12.2022Mygla greindist í Flataskóla - starfsemi frístundaheimilis færist innan skólans
Starfsemi frístundaheimilis Flataskóla mun verða færð þar sem mygla hefur greinst þar í kjölfar sýnatöku. Einnig mun kennslustofu sem Tónlistarskóli Garðabæjar hefur haft til afnota verða lokað þar sem mygla greindist. Kennsla sem fór fram í stofunni færist einnig innan skólans.
Fréttir07.12.2022Mygla greindist í Hofsstaðaskóla -kennsla raskast óverulega
Fimm kennslustofum í Hofsstaðaskóla í Garðabæ hefur verið lokað þar sem mygla greindist í þeim í kjölfar sýnatöku í síðasta mánuði. Kennsla raskast óverulega vegna þessa og stefna bæjaryfirvöld að því að leigja færanlegar skólastofur sem verður komið fyrir á skólalóðinni strax eftir jólafrí.
Fréttir06.12.2022Efla þarf forvarnarstarf lögreglu og sýnilega löggæslu
Á stjórnarfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í dag, 5. desember, var bókun samþykkt um mikilvægi þess að lögreglan verði efld og styrkt til þess að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu.
Fréttir06.12.2022Nýtt flokkunarkerfi á heimilisúrgangi í Garðabæ vorið 2023
Árið 2023 munu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taka upp nýtt og samræmt flokkunarkerfi á heimilisúrgangi. Með lögum um hringrásarhagkerfi, sem taka gildi um áramótin, verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, lífrænan úrgang (matarleifar) og blandaðan úrgang.
Fréttir01.12.2022Ábyrgur rekstur og sterk fjárhagsstaða
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 var samþykkt á bæjarstjórnarfundi þann 1. desember sl. Samhliða áætlun næsta árs var jafnframt lögð fram þriggja ára áætlun fyrir árin 2024, 2025 og 2026. Fjárhagslegt svigrúm er til að sækja fram en einnig til þess að viðhalda lágum og í sumum tilfellum lækka álögur á íbúa og fyrirtæki.Á árinu 2023 verður stóraukin áhersla á endurbætur á húsnæði og lóðum sveitarfélagsins og áframhaldandi uppbygging innviða.
Fréttir01.12.2022Félagsmiðstöðin Urri opnaði í Urriðaholtsskóla
Þriðjudaginn 29. nóvember sl.var fyrsta opnun hjá félagsmiðstöðinni Urra í Urriðaholtsskóla.
Fréttir30.11.2022Nýr samskiptastjóri Garðabæjar
Ásta Sigrún Magnúsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf samskiptastjóra Garðabæjar sem var auglýst fyrr í haust.
Fréttir29.11.2022Vel heppnuð aðventuhátíð á Garðatorgi
Óhætt er að segja að góð stemning hafi einkennt aðventuhátíð Garðabæjar sem fór fram á Garðatorgi þann 26. nóvember sl.