Fréttir og tilkynningar
Fréttir19.04.2022Matjurtagarðar og gróðurkassar nú leigðir á vef Garðabæjar
Nýtt kerfi þar sem íbúar Garðabæjar geta valið sér og leigt matjurtagarð eða gróðurkassa er nú komið í loftið. Garðana má finna á 3 stöðum í Garðabæ, í Hæðahverfi, á Álftanesi og í Urriðaholti.
Fréttir19.04.2022Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ
Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 21. apríl nk.
Fréttir13.04.2022Opnunartímar sundlauga um páskana
Sundlaugar Garðabæjar eru lokaðar á föstudaginn langa og páskadag, en annars haldast opnunartímar óbreyttir.
Fréttir13.04.2022Jazzhátíð Garðabæjar 21.-24. apríl 2022
Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin í 16. sinn dagana 21.-24. apríl nk. Hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar en listrænn stjórnandi hefur frá upphafi verið Sigurður Flosason tónlistarmaður.
Fréttir12.04.2022Fimm flokkar bjóða fram lista til sveitarstjórnarkosninga 14. maí
Yfirkjörstjórn Garðabæjar hefur veitt viðtöku fimm framboðum til sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ sem fram eiga að fara laugardaginn 14. maí nk.
Fréttir08.04.2022Garðabær skiptir út ljósastaurum á götum og stígum fyrir orkusparandi ljós með meiri ljósgæðum
Á næstu árum verður 1.800 ljósastaurum í Garðabæ skipt út fyrir betri ljós, með endingarbetri og orkusparandi ljósaperum sem og að ljósgæðin verða meiri. Hafist verður handa á þessu ári við að skipta út um 500 ljósum með kvikasilfurperum sem eru á stígum á gönguleiðum barna og í námunda við skóla
Fréttir08.04.2022Samningur um skipulagsráðgjöf á þróunarsvæði A og Hafnarfjarðarvegi undirritaður
Samningur um skipulagsráðgjöf á þróunarsvæði A og Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ milli bæjarmarka var undirritaður í gær, fimmtudag, af Gunnari Einarssyni bæjarstjóra, Hallgrími Þór Sigurðssyni frá Arkþing – Nordic og Helgu Jóhönnu Bjarnadóttur frá Eflu.
Fréttir08.04.2022Fjölskyldufjör í lok Barnamenningarhátíðar í Garðabæ, laugardaginn 9. apríl
Barnamenningarhátíð í Garðabæ lýkur laugardaginn 9. apríl með fjöri, sköpun og gleði fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin er ókeypis og fer fram í glerhýsum á Garðatorgi, í Hönnunarsafni Íslands og á Bókasafni Garðabæjar
Fréttir06.04.2022Veiðitímabilið er hafið í Vífilsstaðavatni
Veiðitímabilið í Vífilsstaðavatni stendur yfir frá 1. apríl til 15. september.
Fréttir04.04.2022Barnamenningarhátíð í Garðabæ dagana 4-9. apríl
Fjöldi grunn- og leikskólabarna tekur þátt í dagskrá á Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar og á yfirbyggðum torgum dagana 4. – 8. apríl.
Fréttir01.04.2022Hádegistónleikar með Lilju Guðmundsdóttur og Evu Þyri Hilmarsdóttur
Vakin er athygli á hádegistónleikum næsta miðvikudag, 6. apríl kl. 12:15-12:45 í Tónlistarskóla Garðabæjar. Þær Lilja Guðmundsdóttir sópransöngkona og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari munu næra gesti á hádegistónleikunum og flytja lög eftir Jóhann Helgason, Jóhann G. Jóhannsson, Hauk Tómason, Schubert, Grieg og fleiri meistara.
Fréttir01.04.2022Stafræn sundkort í sundlaugar Garðabæjar
Stafræn sundkort Garðabæjar eru komin í loftið fyrir íbúa og aðra notendur almenningssundlauga Garðabæjar, í Ásgarði og á Álftanesi.
Fréttir31.03.2022Saumavélakennsla og söngstund á Bókasafni Garðabæjar
Laugardaginn 2. apríl kl. 13:30 mun Bókasafn Garðabæjar bjóða upp á kennslu í fataviðgerðum og á saumavél.
Fréttir30.03.2022Álftanesvegur lokaður vegna kvikmyndatöku
Minnt er á lokun í dag, miðvikudaginn 30. mars þegar Álftanesvegur verður lokaður að hluta fyrir umferð vegna kvikmyndatöku. Hjáleið verður í staðinn um Garðahraunsveg (gamla Álftanesveg) þar sem verður leyft að keyra í gegn á meðan. Gert er ráð fyrir að lokunin á Álftanesvegi standi yfir frá kl.9:00 til kl. 19:00.
Fréttir25.03.2022Leiðsögn um sýninguna SUND í Hönnunarsafni Íslands
Sunnudaginn 27. mars nk. kl. 13 munu sýningarstjórar SUNDs, þau Valdimar T. Hafstein, þjóðfræðingur og Brynhildur Pálsdóttir, hönnuður ganga með gestum um sýninguna og draga fram áhugaverðar sögur tengdar sundinu og sýningunni sem er haldin í Hönnunarsafni Íslands.