Fréttir og tilkynningar
Fréttir22.03.2022Fimm bikarmeistaratitlar í Garðabæinn
Stjarnan var með sanni lið helgarinnar í bikarkeppnum körfuboltans því alls unnu flokkar félagsins fimm bikarmeistaratitla af þeim níu sem voru í boði.
Fréttir17.03.2022Biðlisti vegna sumarstarfa
Umsóknarfrestur um sumarstörf hjá Garðabæ rann út í byrjun mánaðarins. Ákveðið hefur verið að opna fyrir umsóknir á biðlista og mun verða hægt að sækja um á biðlistann til og með 30. apríl. Byrjað verður að vinna úr umsóknum í lok mars.
Fréttir16.03.2022Sameiginleg yfirlýsing um samstarf vegna sorphirðu
Fulltrúar sveitafélaganna á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um samstarf vegna sorphirðu á dögunum í móttöku- og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi.
Fréttir15.03.2022Traust fjárhagsstaða Garðabæjar
Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2021, sem lagður var fram á fundi bæjarráðs Garðabæjar í dag, þriðjudaginn 15. mars 2022, lýsir sterkri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Fréttir15.03.2022Uppbygging Hofsstaðaskóla í Minecraft
Nemendur í Hofsstaðaskóla áttu í sameiningu að byggja skólann sinn og verkfærið sem þeir fengu var tölva og Minecraft hugbúnaðurinn.
Fréttir15.03.2022Truflun á kalda vatninu
Vegna bilunar í veitukerfi gæti orðið truflun á kalda vatninu í Garðabæ í dag, 15. mars.
Fréttir13.03.2022Gul veðurviðvörun 14. mars
GUL VIÐVÖRUN, YELLOW WARNING, STOPIEŃ ZAGROŻENIA 1 (ŻÓŁTY ALERT) Gul veðurviðvörun er í gildi mánudaginn 14. mars frá kl. 10:00 til kl.17:00.
Fréttir11.03.2022Nýr leikskóli í Urriðaholti
Haustið 2022 mun 6 deilda leikskóli taka til starfa við Kauptún í Garðabæ í húseiningum sem verða reistar á staðnum. Leikskólinn er undanfari nýs 6 deilda leikskóla fyrir allt að 120 börn við Holtsveg í Urriðaholti sem verður tekinn í notkun haustið 2023.
Fréttir09.03.2022Engar skemmdir á Miðgarði
Vegna frétta um vatn umhverfis Miðgarð er rétt að láta vita af því að engar eða sáralitlar skemmdir urðu á Miðgarði vegna þess og hefur starfsemi hússins ekki raskast á neinn hátt. Allar íþróttaæfingar eru á áætlun í húsinu.
Fréttir08.03.2022Klifurveggur í Miðgarði
Klifurveggur hefur verið settur upp í Miðgarði, nýju fjölnota íþróttahúsi Garðabæjar. Klifurveggurinn er hannaður og byggður af fyrirtækinu Walltopia í Búlgaríu.
Fréttir07.03.2022Hvatningarsjóður fyrir unga hönnuði og listamenn
Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Hvatningarsjóð fyrir unga hönnuði og listamenn í Garðabæ.
Fréttir04.03.2022900. fundur bæjarstjórnar Garðabæjar
Fundur bæjarstjórnar Garðabæjar fimmtudaginn 3. mars sl. var merkilegur fyrir þær sakir að þetta var 900. fundur bæjarstjórnar frá upphafi en fyrsti fundur bæjarstjórnar Garðabæjar var haldinn 6. janúar 1976 en í byrjun þess árs fékk Garðabær kaupstaðarréttindi.
Fréttir04.03.2022Sumarstörf - umsóknarfrestur rennur út 7. mars nk.
Garðabær hefur auglýst til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir ungt fólk árið 2022. Minnt er á að umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 7. mars nk.
Fréttir04.03.2022Opnunarhátíð og innflutningsboð í Hönnunarsafni Íslands
Laugardaginn 5. mars klukkan 15 verður opnun sýningarinnar Sund í Hönnunarsafninu fagnað en sýningin hefur verið opin almenningi frá því í febrúar. Þá verður einnig innflutningsboð hjá vöruhönnuðunum sem kalla sig Studio Allsber en þær eru í vinnustofudvöl í safninu.
Fréttir03.03.2022Furðuverur sungu á öskudag
Kátir krakkar í skrautlegum búningum lögðu margir leið sína í þjónustuver Garðabæjar á Öskudaginn í gær, miðvikudaginn 2. mars.