Fréttir og tilkynningar
Fréttir17.07.2025Betri tenging á milli hesthúsahverfa
Framkvæmdir við nýjan reiðstíg á milli hesthúsahverfa í Garðabæ og Hafnarfirði eru hafnar. Um 2,5 km langan stíg er að ræða. Með honum fæst tenging yfir í Hafnarfjörð um núverandi reiðgötur við Smyrlabúð.
Fréttir17.07.2025Nýr sérhæfður grunnskóli fyrir einhverf börn í undirbúningi í Garðabæ
Garðabær og Jónsvegur ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um stofnun nýs sérhæfðs grunnskóla fyrir einhverf börn. Stefnt er að því að skólinn hefji starfsemi haustið 2026 og taki á móti allt að fimm nemendum á fyrsta starfsári.
Fréttir15.07.2025Reglur um lagningu ferðavagna
Hér má finna upplýsingar um það sem ber að hafa í huga við lagningu ferðavagna samkvæmt umferðarlögum.
Fréttir14.07.2025Fegra umhverfið og bæta aðgengi að útivistasvæðum
Starfsfólk umhverfishópa Garðabæjar hafa sinnt fjölbreyttum verkefnum í sumar og fegrað umhverfið svo um munar.
Fréttir09.07.2025Hvar er snyrtilegasta lóðin í bænum?
Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega umhverfisviðurkenningar og leitar nú til bæjarbúa eftir ábendingum.
Fréttir08.07.2025Íslandsmeisturum veitt viðurkenning og styrkur
Bæjarstjórn Garðabæjar bauð nýverið til samsætis í Sveinatungu til að fagna fyrsta Íslandsmeistaratitli karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta. Við tilefnið var Stjörnunni veitt viðurkenning og styrkur.
Fréttir07.07.2025Sýna „magnaða óperu“ Puccini í Tónlistarskóla Garðabæjar
Listakonurnar úr sviðslistahópnum Gjallandi hlutu styrk úr Hvatningarsjóði til að setja upp óperuna Suor Angelica eftir Puccini í sumar. Verkið verður sýnt 9. og 11. júlí í sal Tónlistarskóla Garðabæjar klukkan 20.
Fréttir02.07.2025Grasslátturinn í fullum gangi
Tveir sláttuhópar frá Garðabæ auk hóps frá Garðlist sjá til þess að opin grassvæði í Garðabæ séu vel slegin, hirt og snyrtileg í sumar.
Fréttir01.07.2025Næsta innritunarlota verður í ágúst
Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2025–2026 hefur gengið vel og í maí höfðu öll börn fædd í september 2024 eða fyrr fengið boð um leikskólavist.
Fréttir27.06.2025Flottri frammistöðu nemenda fagnað
Það var líf og fjör í Sveinatungu á Garðatorgi þegar hópur nemenda úr skólum Garðabæjar kom saman til að taka við viðurkenningu fyrir góða frammistöðu í hinum ýmsum skólakeppnum fyrir hönd síns skóla.
Fréttir26.06.2025Kenna árangursríkar uppeldisaðferðir á PMTO-foreldranámskeiði
Fræðslu- og frístundasvið og velferðarsvið Garðabæjar mun í haust bjóða upp á PMTO-foreldranámskeið. Námskeiðið miðar að því að kenna árangursríkar aðferðir í uppeldi og að efla foreldra í uppeldishlutverkinu.
Fréttir25.06.2025Skrifað undir endurnýjaðan samning við Skógræktarfélag Reykjavíkur
Garðabær og Skógræktarfélag Reykjavíkur hafa skrifað undir endurnýjaðan samstarfssamning um þann hluta Heiðmerkur sem liggur í Garðabæ. Félagið mun áfram vinna að skógrækt, sjá um skóglendið, byggja upp viðhalda útivistarinnviðum ásamt því að sinna fræðslustarfi.
Fréttir24.06.2025Hugmyndir fyrir góðviðrisdaga í Garðabæ
Það er ýmislegt skemmtilegt hægt að gera í Garðabæ á góðviðrisdögum. Hér koma nokkrar hugmyndir sem gott er að hafa á bak við eyrað í sumar.
Fréttir24.06.2025Dælustöð við Breiðumýri ekki í rekstri á fimmtudag vegna viðhalds
Dælustöð vatnsveitu við Breiðumýri verður ekki í rekstri á meðan á framkvæmd stendur og ráðlagt er að geyma sjóböð og fjöruferðir við strendur Álftaness þar til vinnunni er lokið.
Fréttir23.06.2025Skrifa og setja upp leikrit í skapandi sumarstörfum
Skapandi sumarstörf eru nú komin á fullt flug. Listakonurnar Guðrún Ágústa, Katrín Ýr og Tinna Margrét eru meðal þeirra sem eru í skapandi sumarstörfum hjá Garðabæ í sumar og vinna nú að því að setja upp leikrit.