Fréttir og tilkynningar
Fréttir07.10.2022Samráðsfundur með þingmönnum Suðvesturkjördæmis
Fimmtudaginn 6. október sl. funduðu bæjarfulltrúar Garðabæjar og þingmenn Suðvesturkjördæmis þar sem farið var yfir helstu mál sem eru á döfinni hjá Garðabæ. Fundurinn er liður í kjördæmadögum alþingis sem standa nú yfir.
Fréttir06.10.2022Góð stemmning á uppskeruhátíð á Garðatorgi
Bændamarkaður, tilboð í verslunum, sirkus og matarvagnar settu svip sinn á uppskeruhátíð á Garðatorgi laugardaginn 1. október sl. Hugmyndakassi um miðbæinn var á staðnum og hægt að senda inn hugmyndir um miðbæinn í samráðsgátt sem er opin til og með 9. október nk.
Fréttir06.10.2022Skólablak í Miðgarði
Fimmtudaginn 6. október fór fram skólablak í fjölnota íþróttahúsinu Miðgarði þar sem grunnskólabörn úr Garðabæ fengu tilsögn.
Fréttir06.10.2022Vörðum leiðina saman
Samráðsfundur með íbúum höfuðborgarsvæðisins um samgöngur, sveitarstjórnarmál og húsnæðis- og skipulagsmál verður haldinn mánudaginn 10. október nk.
Fréttir06.10.2022Dale Carnegie námskeið fyrir ungt fólk í Garðabæ
Garðabær er í samstarfi við Dale Carnegie um námskeið í haust fyrir ungt fólk á aldrinum 13-15 ára (8.-10. bekk) búsett í Garðabæ. Dale Carnegie námskeiðið er einu sinni í viku, 3,5 klst í senn í 9 skipti.
Fréttir04.10.2022Tónleikar Ómars Guðjónssonar
Sunnudagskvöldið 9. október kl. 20 lýkur Ómar Guðjónsson tónleikaferðalagi sínu um landið með tónleikum í sal Tónlistarskóla Garðarbæjar að Kirkjulundi.
Fréttir04.10.2022Æfingar yngri landsliða í Miðgarði næstu þrjú árin
Garðabær og Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) hafa samið um æfingaaðstöðu fyrir yngri landslið Íslands í fjölnota íþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ. Samningurinn var undirritaður í dag, þriðjudaginn 4. október, og er til þriggja ára.
Fréttir30.09.2022Fjölskylduhlaup Garðabæjar er hluti af árlegri íþróttaviku Evrópu
Fjölskylduhlaup Garðabæjar fer fram laugardaginn 1. október nk. Hlaupið hefst kl. 11 og er ræst út frá Stjörnutorgi við Samsungvöllinn.
Fréttir30.09.2022Ábendingar og tillögur íbúa um fjárhagsáætlun bæjarins
Íbúum Garðabæjar gefst kostur á að senda inn ábendingar og tillögur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árin 2023-2026.
Fréttir30.09.2022Forvarnavika Garðabæjar
Forvarnavika Garðabæjar er haldin 5.-12. október 2022. Um er að ræða þemaviku þar sem unnið verður með hugtökin farsæld -foreldrahlutverk og samvera. Það er íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar sem stendur að forvarnaviku í samstarfi við skóla bæjarins, félagsmiðstöðvar og fleiri stofnanir.
Fréttir30.09.2022Uppskeruhátíð á Garðatorgi
Laugardaginn 1. október verður haldin uppskeruhátíð á Garðatorgi. Verslanir og þjónustuaðilar bjóða upp á vörur og þjónustu, bændamarkaður með vörum beint frá býli verður í göngugötunni, bitabílar bjóða upp á góðgæti og Sirkus Íslands mætir. Þennan dag verður gestum og gangandi boðið að setja skriflegar hugmyndir um miðbæinn í hugmyndakassa sem staðsettur verður á torginu.
Fréttir29.09.2022Samstarfssamningur Garðabæjar og RannUng
Í vikunni skrifuðu Garðabær og RannUng (Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna) undir samstarfssamning vegna innleiðingar ákvæða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (2013) í leikskóla Garðabæjar.
Fréttir23.09.2022Góðar umræður á Álftanesi
Þriðji fundur í röð íbúafunda í september var haldinn í Álftanesi miðvikudagskvöldið 21. september sl. Góðar umræður voru á fundinum þar sem spurt var um fjölbreytt málefni s.s. um fráveitumál, sjósund, umferðarhraða og umferðaröryggi á Álftanesvegi, sérfræðiþjónustu í skólum, frístundastarf að sumri, stígagerð og umhirðu á opnum svæðum.
Fréttir23.09.2022Þjónustukönnun Bókasafns Garðabæjar
Starfsfólk Bókasafns Garðabæjar leitar til bæjarbúa og biður þá um að svara stuttri rafrænni könnun um starfsemi safnsins. Markmiðið er að veita sem besta þjónustu, fjölbreyttasta úrval bóka og gagna, viðburða og klúbba sem völ er á.
Fréttir21.09.2022Hvernig gerum við góðan miðbæ betri – hvernig vilt þú hafa Garðatorg?
Skipuð hefur verið undirbúningsnefnd um uppbyggingu miðbæjar í Garðabæ. Markmið nefndarinnar er að vinna að undirbúningi þess að fullgera aðlaðandi og heildstæðan miðbæ á og í kringum Garðatorg. Nú hefur samráðsgátt um mótun miðbæjarins verið opnuð.