Fréttir og tilkynningar
Fréttir14.05.2022Kjörsókn í Garðabæ - nýjustu tölur
Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar hófst í morgun laugardaginn 14. maí 2022 kl. 09:00 og stendur til kl. 22:00 í kvöld. Hér á vef Garðabæjar verða settar inn tölur yfir daginn um kjörsókn.
Fréttir13.05.2022Vífilsbúð – ný útilífsmiðstöð skáta vígð
Miðvikudaginn 11. maí sl. var ný útilífsmiðstöð skátafélagsins Vífils er nefnist Vífilsbúð vígð. Útilífsmiðstöðin Vífilsbúð er staðsett við Grunnuvötn í Heiðmörk. Með tilkomu hinnar nýju útilífsmiðstöðvar Vífilsbúðar skapast betri möguleikar á að efla áhuga barna og unglinga á starfsemi skátafélagsins enda verður húsnæðið notað til að starfrækja fjölbreytta uppeldisstarfsemi í anda skátahreyfingarinnar.
Fréttir13.05.2022Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 14. maí
Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar, er fram eiga að fara laugardaginn 14. maí 2022, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni við Skólabraut og Álftanesskóla við Breiðumýri. Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.
Fréttir12.05.2022Ný reiðhöll Sóta á Álftanesi vígð
Þriðjudaginn 10. maí sl. var ný reiðhöll hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi vígð. Fulltrúar úr bæjarstjórn Garðabæjar ásamt forsvarsmönnum Sóta klipptu sameiginlega á borða við þetta tækifæri og ungmenni úr hestamannafélaginu sýndu listir sínar á fögrum fákum í reiðhöllinni.
Fréttir10.05.2022Úttekt vegna starfsemi sem fram fór í daggæslu og á leikskóla
Í desember 2021 ákvað Garðabær að gera úttekt á starfsemi sem fram fór í daggæslu og á leikskóla sem hjónin Beverly Sue Gíslason og Einar Gíslason ráku í Garðabæ með hléum á árunum 1996-2014 og verklagi sveitarfélagsins vegna starfseminnar.
Fréttir06.05.2022Nýr leikskóli við Kauptún í Garðabæ
Fimmtudaginn 5. maí tóku bæjarfulltrúar í Garðabæ ásamt formanni leikskólanefndar skóflustungu að nýjum leikskóla við Kauptún í Garðabæ. Hress og kát börn úr kór leikskólans Hæðarbóls í Garðabæ mættu á svæðið og sungu fyrir viðstadda á athöfninni.
Fréttir06.05.2022Uppbygging hefst í Vetrarmýri
Föstudaginn 6. maí var undirritaður samningur á milli Garðabæjar og Framkvæmdafélagsins Arnarhvols um úthutun lóða í Vetrarmýri. Í fyrsta áfanganum voru boðnir út u.þ.b. 26.000 fermetrar af fjölbýli og 26.000 fermetrar af atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum reitum.
Fréttir06.05.2022Náttúruuplifun og leikur á nýju útivistar- og íþróttasvæði í Urriðaholti
Fimmtudaginn 5. maí tók Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, skóflustungu að nýju útivistar- og íþróttasvæði í Urriðaholti í Garðabæ.
Fréttir05.05.2022Bæjarfulltrúar tóku þátt í hreinsunarátakinu
Í ár hófst Hreinsunarátak Garðabæjar á Degi umhverfisins 25. apríl sl. og stendur enn yfir eða til 9. maí nk þegar vorhreinsun lóða hefst. Bæjarfulltrúar í Garðabæ létu sitt ekki eftir liggja og tóku að venju þátt í hreinsunarátakinu.
Fréttir05.05.2022Stafræn sveitarfélög - samstarfsverkefni
Stafræn umbreyting snýst um umbætur á þjónustu og vinnulagi með tækninýjungum. Þetta er mjög stórt breytingaverkefni bæði fyrir hið opinbera sem og einkageirann en ávinningurinn er að einfalda líf íbúa og bæta skilvirkni og rekstur.
Fréttir02.05.2022Fjör við opnun Miðgarðs
Hið nýja fjölnota íþróttahús Garðabæjar, Miðgarður, var opnað með formlegum hætti laugardaginn 30. apríl sl. þegar boðið var til hátíðar í húsinu frá 13-16. Fjölbreytt skemmtidagskrá var í húsinu og gestum gafst kostur á að skoða íþróttamannvirkið
Fréttir28.04.2022Opnunarhátíð Miðgarðs
Laugardaginn 30. apríl kl. 13-16 verður opnunarhátíð Miðgarðs, fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri í Garðabæ. Allir velkomnir!
Fréttir27.04.2022Líðan unglinga í Garðabæ -kynning á niðurstöðum
Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu kynnir niðurstöður nýjustu könnunar á á högum og líðan grunnskólabarna í 8., 9., og 10. bekk, miðvikudaginn 27. apríl nk. kl. 20 í Sveinatungu.
Fréttir25.04.2022Örugg búseta fyrir alla – kortlagningu lokið á höfuðborgarsvæðinu
Í október sl. var samstarfsverkefni Húsnæðis og Mannvirkjastofnunar (HMS), ASÍ og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) ”Örugg búseta fyrir alla” ýtt úr vör, en markmiðið var að kortleggja búsetu í atvinnuhúsnæði. Verkefnið hófst með kortlagningu á höfuðborgarsvæðinu sem nú er lokið og eru ítarlegar niðurstöður að finna í skýrslu sem unnin var í kjölfarið.
Fréttir22.04.2022Hreinsunarátak Garðabæjar hefst 25. apríl
Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar hefst á Degi umhverfisins 25. apríl. Nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátakinu með það að markmiði að Garðabær verði einn snyrtilegasti bær landsins.