Fréttir og tilkynningar
Fréttir11.01.2022Lið og þjálfarar ársins 2021
Lið ársins 2021 í Garðabæ er kvennalið meistaraflokks Stjörnunnar í hópfimleikum og þjálfarar ársins 2021 voru þau Óskar Þorsteinsson körfuboltaþjálfari hjá Stjörnunni og Una Brá Jónsdóttir fimleikaþjálfari hjá Stjörnunni.
Fréttir11.01.2022Tilkynning til notenda akstursþjónustu um öryggisbrest í kerfum Strætó
Líkt og komið hefur fram í fréttum varð Strætó fyrir fjandsamlegri netárás frá erlendum árásaraðilum í lok desember sem náðu að brjóta sér leið inn í kerfi Strætó og afrita gögn og upplýsingar sem þar eru að finna.
Fréttir11.01.2022COVID-19: Gildandi takmarkanir innanlands framlengdar til 2. febrúar
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi.
Fréttir10.01.2022COVID-19: Breyttar reglur um sóttkví
Heilbrigðisráðherra hefur breytt reglum um sóttkví í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Breytingarnar byggja á faglegu mati og góðri bólusetningarstöðu þjóðarinnar
Fréttir10.01.2022Íþróttamenn Garðabæjar 2021 eru Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Kolbrún Þöll Þorradóttir
Íþróttamenn Garðabæjar árið 2021 eru Helgi Laxdal Aðalgeirsson hópfimleikamaður í Stjörnunni og Kolbrún Þöll Þorradóttir hópfimleikakona í Stjörnunni. Tilkynnt var um kjör þeirra sunnudaginn 9. janúar sl. í útsendingu á vef Garðabæjar.
Fréttir10.01.2022Sorphirðudagatal - auðveldara aðgengi að upplýsingum um næstu losun á sorp- og pappírstunnum
Á vef Garðabæjar er nú hægt að slá inn götuheiti og sjá á einfaldan hátt hvenær næsta sorp- eða pappírshirðing er í götunni.
Fréttir07.01.2022Íþróttahátíð Garðabæjar verður sýnd á netinu sunnudaginn 9. janúar
Kjöri íþróttamanna ársins í Garðabæ verður lýst í útsendingu á vefnum sunnudaginn 9. janúar kl. 14. Þá verður einnig tilkynnt um val á „liði ársins“ og „þjálfurum ársins“ auk heiðursviðurkenninga vegna starfa að íþrótta- og æskulýðsmálum.
Fréttir07.01.2022Íbúafundur um deiliskipulag íbúðabyggðar við Víðiholt og deiliskipulag hesthúsabyggðar á Álftanesi
Kynningarfundur um deiliskipulagstillögurnar sem átti að halda 13. janúar verður haldinn fimmtudaginn 27. janúar nk. kl. 17-18:30. Nánar verður tilkynnt um staðsetningu og fundarform þegar fyrir liggur hvernig samkomutakmarkanir verða á þeim tíma.
Fréttir03.01.2022Jólatré hirt 7.-8. janúar
Jólatré verða hirt í Garðabæ 7.-8. janúar nk. Íbúar sem ætla að nýta sér þjónustuna eru beðnir um að ganga frá trénum út fyrir lóðamörk þannig að þau geti ekki fokið.