Tómstunda- og frístundaheimili
Í tómstundaheimilum skólanna gefst nemendum skólanna kostur á að taka þátt í ýmis konar leik og starfi. Bæjarstjórn hefur samþykkt ramma um starfsemi tómstundaheimila sem starfsemi þeirra allra fellur inn í þótt áherslur geti verið ólíkar.
Starfstími tómstundaheimila er alla skóladaga frá því að reglulegri kennslu samkvæmt stundaskrá lýkur til kl. 17:00. Opið á starfsdögum kennara og í vetrarfríi. Að öðru leyti er opið eins og skóladagatal sýnir, nema annað sé tilkynnt.