Nágrannavarsla

Nágrannavarsla er ein besta forvörn sem hægt er að grípa til gagnvart innbrotum, þjófnuðum og skemmdarverkum í íbúðarhverfum.

Nagrannavarsla-litil-myndNágrannavarsla er ekki löggæsla heldur snýst hún um að íbúar standi saman og hafi auga með umferð um götuna sína. Verði íbúar varir við grunsamlegar mannaferðir, t.d. við hús nágranna sem þeir vita að er fjarverandi, er þeirra hlutverk að hringja í 112 og gefa lýsingu á atburðinum.

Góð ráð áður en haldið er í fríið

Forvarnir eigin heimilis

  • Loka vel gluggum og útihurðum
  • Ekki geyma stiga eða verkfæri á lóðinni
  • Hafa útiljósin kveikt, sérstaklega þegar fer að dimma á kvöldin.
  • Hafa svala- og garðhurðir læstar og með krækjum
  • Skipta um skrá þegar flutt er í nýtt húsnæði
  • Læsa þegar dvalið er í garðinum

Aðstoð við nágranna

  • Íbúi lítur eftir heimili nágrannans sé þess óskað
  • Munið að ákjósanlegt er að sá sem er beðinn um að gæta húss hafi það í sjónlínu frá t.d. gluggum og útidyrum. Látið þann vita sem lítur eftir húsinu ef ættingi eða vinur hefur verið beðinn um að líta inn af og til og fer þar með inn í húsið.

Nokkur dæmi um það sem góður granni getur gert

  • Hefur auga með grunsamlegum bíla- og mannaferðum.
  • Fylgist er með að póstur safnist ekki upp í bréfalúgu.
  • Setur sorp í ruslatunnu nágrannans.
  • Leggur bíl í heimreið.
  • Dregur frá/fyrir gluggatjöld.
  • Kveikir og slekkur ljós.
  • Slær blettinn að sumri / moka frá snjó að vetri

Minnum svo á ábendingar frá lögreglu um að tilkynna ekki um fjarveru frá heimili á samfélagsmiðlum.

Vilt þú setja á fót nágrannavörslu? Innleiðing nágrannavörslu

Garðabær hefur hvatt til nágrannavörslu í hverfum bæjarins með því að bjóða upp á almenna fundi þar sem nágrannavarsla hefur verið á dagskrá.

Ef þú hefur áhuga á nágrannavörslu í þinni götu eða fjölbýlishúsi getur þú talað við nágranna þína og kannað með áhuga á virkri nágrannavörslu. 

Ef áhugi er til staðar er hægt að

  • Stofna síðu á samfélagsmiðlum fyrir íbúa í þinni götu / fjölbýlishúsi.  Þar er hægt að deila upplýsingum um góð ráð um nágrannavörslu.
  • Halda kynningarfund með nágrönnum og velja götustjóra/hópstjóra fyrir þína götu. Á kynningarfundi er hægt að fara yfir góð ráð um nágrannavörslu.  
  • Ef götustjóri/hópstjóri er valinn getur sá verið tengiliður við Garðabæ og óskað eftir því við bæinn að fá afhenta límmiða sem íbúar geta sett í rúður húsa sinna um nágrannavörslu. 
  • Götustjóri getur líka reglulega minnt nágranna á ágæti góðrar nágrannavörslu, t.d. með því að upplýsa nýja íbúa um nágrannavörsluna og deila ráðum í gegnum íbúasíðu á samfélagsmiðlum. Á íbúafundum eða götugrillum er hægt að velja nýja götustjóra. 
  • Til að óska eftir skilti um nágrannavörslu í götu þarf að vera virk nágrannavarsla í götunni. Hægt er að hafa samband við þjónustuver Garðabæjar vegna þessa. 


Tenglar og gátlistar

Upplýsingar um nágrannavörslu veitir:

Þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7.  Sími 525 8500, netfang gardabaer@gardabaer.is