Beint í efni
IS

Fyrsti fund­ur nýrrar bæj­ar­stjórn­ar Garða­bæj­ar

Fréttir
05.06.2026

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Garðabæjar var haldinn 4. júní 2026.

Almar Guðmundsson, sem er starfsaldursforseti bæjarstjórnar, setti fund. Almar bauð bæjarfulltrúa velkomna til fyrsta fundar nýkjörinnar bæjarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og óskaði þeim til hamingju með kjör þeirra til bæjarstjórnar. Almar færði fyrrum bæjarfulltrúum þakkir fyrir þeirra störf í þágu samfélagsins.

Á þessum fyrsta fundi var Anna Ragnheiður Möller (D) kosin forseti bæjarstjórnar, Jón Þór Eggertsson (D) var kosinn fyrsti varaforseti bæjarstjórnar og Þorbjörg Þorvaldsdóttir (G) var kosin annar varaforseti bæjarstjórnar.

Á þessum fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar var kosið í fastanefndir og ýmsar samstarfsnefndir. Upplýsingar um nefndaskipan má nálgast í fundargerð bæjarstjórnar frá 4. júní.

Fundargerð bæjarstjórnar Garðabæjar, 4. júní.

Bæjarstjórnarfundir opnir almenningi

Bæjarstjórn Garðabæjar 2026-2030 er skipuð 11 fulltrúum. Í kosningum í maí 2026 voru eftirtaldir fulltrúar kjörnir í bæjarstjórn:

  • Almar Guðmundsson (D)
  • Björg Fenger (D)
  • Margrét Bjarnadóttir (D)
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson (D)
  • Stella Stefánsdóttir (D)
  • Birkir Guðlaugsson (D)
  • Jón Þór Eggertsson (D)
  • Anna R. Möller (D)
  • Kjartan Atli Kjartansson (S)
  • Hlynur Bæringsson (B)
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir (G)

Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Hún fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, að svo miklu leyti sem hún hefur ekki falið hana öðrum. Á meðal annarra verkefna er kosning í ráð og nefndir á vegum bæjarstjórnar, yfirstjórn á fjárreiðum bæjarins, gerð samþykkta og ákvörðun gjalda, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.

Fundir bæjarstjórnar Garðabæjar eru fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar og hefjast kl. 17. Fundir bæjarstjórnar eru haldnir í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar á Garðatorgi 7.

Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru þeir jafnframt í beinni útsendingu á vef Garðabæjar.

Fundargerðir bæjarstjórnar eru birtar á vef Garðabæjar daginn eftir fund.

Upptökur (myndupptökur og eldri hljóðupptökur) af fundum bæjarstjórnar má sjá hér.