Viðburðir
Fundur bæjarstjórnar Garðabæjar
Næsti fundur bæjarstjórnar verður fimmtudaginn 1. september kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi 7. Fundurinn verður jafnframt í beinni útsendingu á vef Garðabæjar.
Lesa meiraForsetahlaup
Forsetahlaup er hluti af Íþróttaveislu UMFÍ og 100 ára afmæli UMSK. Tilvalinn fjölskyldu viðburður þar sem hlaupið er saman á Álftanesi.
Lesa meiraSögur og söngur
Sögur og söngur með Þórönnu Gunný laugardaginn 3. september kl. 11:15 á Bókasafni Garðabæjar. Lesið fyrir hund laugardaginn 10.september kl. 11:30-12:30, skráning nauðsynleg.
Lesa meiraNOW Eldslóðin
Það styttist heldur betur í NOW Eldslóðina en mótið er laugardaginn 3. september. Brautin rennur frá Vífilstaðavatni inn í Heiðmörk að Burfellsgjá og þaðan hringinn í kringum Helgafell og tilbaka.
Lesa meiraHvað leynist í lauginni þinni? Fjölskyldusmiðja
Sunnudaginn 4. september kl. 13 leiðir Rán Flygenring fjölskyldusmiðjuna Hvað leynist í lauginni þinni? í Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi.
Lesa meiraTónlistarnæring - Þóra Einarsdóttir syngur á hádegistónleikum
Miðvikudaginn 7. september kl. 12:15 kemur Þóra Einarsdóttir sópran fram á hádegistónleikum í sal Tónlistarskóla Garðabæjar að Kirkjulundi.
Lesa meiraHvað finnst þér? Samtal um bæinn okkar - íbúafundur í Urriðaholti
Samtal um bæinn okkar - íbúafundir í september 2022 með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar. Fyrsti fundur verður haldinn miðvikudaginn 7. september kl. 19:30 í Urriðaholtsskóla.
Lesa meiraHinn fullkomni karlmaður með Sverri Norland
Rithöfundurinn Sverrir Norland fjallar um karlmennsku í samtímanum á stórskemmtilegan hátt á Bókasafni Garðabæjar fimmtudaginn 8. september kl. 17:30.
Hvernig eigum við að hugsa um karlmennskuna - bæta hana og efla og vera með karlmönnum í liði?
Hvernig líta fyrirmyndir ungra karlmanna út í dag?
Uppskeruhátíð hjá Skólagörðum Garðabæjar
Uppskeruhátíð hjá Skólagörðum Garðabæjar verður haldin laugardaginn 10. september nk. Hátíðin stendur frá kl. 10-16 en í hádeginu verða grillaðar pylsur fyrir duglega ræktendur og aðstoðarmenn þeirra.
Lesa meiraHvað finnst þér? Samtal um bæinn okkar - íbúafundur í Flataskóla
Samtal um bæinn okkar - íbúafundir í september 2022 með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar. Næsti fundur verður haldinn miðvikudaginn 14. september kl. 19:30 í Flataskóla.
Lesa meiraFundur bæjarstjórnar Garðabæjar
Næsti fundur bæjarstjórnar verður fimmtudaginn 15. september kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi 7. Fundurinn verður jafnframt í beinni útsendingu á vef Garðabæja
Lesa meiraEvrópsk samgönguvika verður haldin dagana 16.-22. september 2022.
Evrópsk samgönguvika verður haldin dagana 16.-22. september 2022. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Garðabær tekur þátt í samgönguvikunni sem fyrr ásamt sveitarfélögum víðs vegar um allt land.
Lesa meiraBál tímans og handritasmiðja
Laugardaginn 17. september kl. 12:00 verður boðið upp á æsispennandi tímaflakk í fylgd gamallar skinnbókar og handritasmiðju frá Árnastofnun á Bókasafni Garðabæjar.
Lesa meiraHvað finnst þér? Samtal um bæinn okkar - íbúafundur á Álftanesi
Samtal um bæinn okkar - íbúafundir í september 2022 með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar. Þriðji fundur verður haldinn miðvikudaginn 21. september kl. 19:30 í Álftanesskóla.
Lesa meiraOpinn Manga klúbbur
Opinn Manga klúbbur með Íslenska myndasögusamfélaginu á Garðatorgi laugardaginn 24. september kl. 11:30.
Lesa meiraHöfundur í heimsókn - Kjartan Atli
Rithöfundurinn, fjölmiðlamaðurinn og körfuboltakappinn Kjartan Atli Kjartansson mætir til okkar á Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi laugardaginn 24. september kl. 12:00 og les upp úr bók sinni Saman í liði um þau Lóu og Börk.
Lesa meiraSpjall um sýninguna SUND
Sunnudaginn 25. september klukkan 13 fer fram spjall um sýninguna Sund á Hönnunarsafni Íslands.
Lesa meiraHvað finnst þér? Samtal um bæinn okkar - íbúafundur í Sjálandsskóla
Samtal um bæinn okkar - íbúafundir í september 2022 með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar. Fjórði fundur verður haldinn þriðjudaginn 27. september kl. 19:30 í Sjálandsskóla.
Lesa meiraPrjóna- og sögustund
Notaleg prjóna- og sögustund á bókasafninu fyrir alla áhugasama. Lesið verður úr smásögunni Kona með spegil eftir Svövu Jakobsdóttur.
Lesa meira